Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lík Naya Rivera fundið

$
0
0

Lík Glee-leikkonunnar Naya Rivera hefur nú fundist í Piru vatninu í Kaliforníuríki þar sem hún týndist í síðustu viku.

Lögreglan í Ventura sýslu sagði lík hafa fundist mánudaginn 13. júlí og hefur fengist staðfest að um Naya er að ræða. Fréttatilkynning þess efnis ku vera á leiðinni.

Naya og fjögurra ára sonur hennar, Josey Hollis Dorsey voru að synda í vatninu síðastliðinn miðvikudag þegar eitthvað skelfilegt gerðist. Josey komst aftur í bátinn sem þau höfðu leigt og þegar yfirvöld ræddu við hann sagði hann ekki vita hvað hefði gerst. Aðeins að þau höfðu verið að synda og hann ekki vitað hvað gerðist svo.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images