14 ára indónesísk stúlka hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram, en hún á afar sérstök gæludýr sem hún dáir – sex risavaxnar kyrkislöngur.
Chalwa Ismah Kamal er ekki eins og flest fólk (sem sennilega myndi hoppa hæð sína að mæta einni kyrkislöngu!) og sýnir líf sitt með slöngunum sex á samfélagsmiðlum. Hún byr á Purwojero í Java og deilir öllu með þeim. Ekki virðist hún hafa miklar áhyggjur af öryggi sínu í kringum þær heldur sést knúsa þær, baða og leika sér við þær.
Margt er á huldu varðandi stúlkuna en hún á að hafa sagt í viðtali við vefsíðuna Lampung77 að hún hafi átt slöngur frá fjögurra ára aldri og kannist því ekki við að finna fyrir hræðslu í kringum þær.
Þrátt fyrir að fólk tjái iðulega áhyggjur sínar af öryggi hennar í athugasemdum við myndböndin á samfélagsmiðlum segir Chalwa að gæludýrin séu ekki eitruð, þau séu tamin og snákar hafi slæmt orð á sér sem eigi ekki við rök að styðjast.
Chalwa og yngri bróðir hennar birtast oft í myndböndunum sem hægt er að fylgjast með á Instagram og TikTok.



#annawawi #annawawiberjan #annawawiberjanputri #santriindonesia #indonesialebihnyantri #santrijawatengah #santrikeren #santrikece #cahpondok #santrihits #santriputrihits #negrisantri #tiktokindo #tiktokindonesia #tiktokviral #tiktokers #tiktokhits #tiktokhitskekinian #pesonasantri #dagelansantri #alasantri #alanu #pesantrenstory #storysantriputri
#annawawi #annawawiberjan #indonesiebihnyantri #alanu #santriindonesia #aasantri #dagelansantri #snatrikeren #santrikece #lingkarsantri #galerisantri #cahpondok #tiktokers #tiktokviral #tiktokindo #tiktokviralindo #tiktokhits #tiktokhitskekinian



