Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Svikahrappur sleppur við fangelsisvist því hann er „of feitur“

$
0
0

74 ára breskur svikahrappur að nafni Barry Beardall frá Hampshire fær einungis skilorðsbundinn dóm því hann er 177 kíló að þyngd. 

Ástæðuna segja fangelsisyfirvöld vera að Barry sé einfaldlega of þungur fyrir kerfið og myndi „raska fangelsisstörfum gríðarlega.“ 

Barry stal frá John nokkrum Ryan og við réttarhöldin sagði dómarinn Peter Henry í dómshúsinu í Southampton Court að Barry, sem er 74 ára gamall, myndi þurfa aðstoðarfólk til að hjálpa honum að komast upp úr rúminu og taka öll lyfin sín. Gæti hann það ekki sjálfur vegna stærðar sinnar og heilsuleysis. 

Dómshúsið í Southampton Court

Í stað þess að fá 12 mánaða fangelsisdóm fékk hann skilorðsbundinn dóm til tveggja ára. 

Barry fékk John Ryan –  sem hafði fjárfest í hlutabréfum í gegnum skrifstofu í Dubai – til að leggja inn fé á reikninga hans þar sem hann sagði erlenda fyrirtækið vera í vandræðum. Ætlaði hann því að „hjálpa“ honum en stal öllu sjálfur. Hafði Barry 2.360 sterlingspund upp úr krafsinu (um 420.000 ISK). Framdi hann glæpinn þegar verið var að rannsaka hann vegna annarra svikamála. 

Gat Barry ekki útskýrt hvaðan peningarnir komu en hann hafði verið dæmdur fyrir peningaþvætti árið 2018. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images