Gulrótasúpur eru alltaf góðar (finnst mér allavega) og það eru til alls konar afbrigði af þeim og þær eru kryddaðar og bragðbættar á ýmsan hátt. Þessi sem sem hér kemur uppskrift að er svolítið óvenjuleg, það er að segja aðferðin, því gulræturnar sem í hana fara eru bakaðar í ofni en ekki soðnar eins og algengast er. Þetta dregur bragði og sætuna í gulrótunum sérlega vel fram og úr verður góð súpa sem margir halda að sé mikið krydduð en er það nú ekki. Gulræturnar verða bara svo miklu bragðmeiri ef byrjað er á að brúna þær.
Ég byrjaði á að kveikja á ofninum og stilla hann á 220°C. Svo tók ég 350 g af gulrótum, flysjaði þær og skar þær í 1/2-1 cm bita.
Ég dreifði úr bitunum á pappírsklæddri bökunarplötu, dreypti 2 msk af olíu yfir, kryddaði með pipar og salti og hrærði í bitunum til að þekja þá jafnt með olíunni. Það hefði verið gáfulegra að setja þær í skál, dreifa kryddi og olíu yfir, velta þeim upp úr þessu og setja þær svo á plötuna, en ég geri ekki alltaf hlutina í réttri röð …
Svo setti ég plötuna í ofninn (á miðrim) í um hálftíma, eða þar til gulræturnar voru meyrar í gegn og byrjaðar að dökkna en ekki brenna. Hrærði í þeim einu sinni eða tvisvar á bökunartímanum.
Á meðan setti ég í pott 1 l af vatni,1 msk af kjúklingakrafti (má líka vera grænmetiskraftur), 2-3 cm bita af engifer, sem ég hafði skorið í þunnar sneiðar, og nokkrar timjangreinar, hitaði að suðu og lét malla rólega í um 15 mínútur. Síaði svo soðið.
Ég saxaði svo 1 lauk og 2-3 hvítlauksgeira smátt, hitaði 1 msk af ólífuolíu í potti og lét lauk og hvítlauk krauma við meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast.
Gulrótabitarnir voru þá einmitt mátulega brúnaðir og meyrir og ég setti þá saman við laukinn, síaði soðið saman við, hitaði að suðu og lét malla í fáeinar mínútur. Svo maukaði ég súpuna í matvinnsluvél en það má líka nota töfrasprota – mér þykir best að hafa hana frekar grófa en það má líka hafa hana fína og slétta – og svo má þynna hanameð svolitlu vatni ef hún mjög þykk. Svo er bara að smakka og bragðbæta með pipar og salti eftir þörfum.
Gulrótasúpa með bökuðum gulrótum
350 g gulrætur
3 msk ólífuolía
pipar
salt
1 l vatn
1 msk kjúklinga- eða grænmetiskraftur
2-3 cm biti af engifer, skorinn í sneiðar
nokkrar timjangreinar
1 laukur
2-3 hvítlauksgeirar