Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Prjónaföndur með Tínu

$
0
0

Að þessu sinni ætla ég að vera með stuttan föndurpistil. Sko . . . hann er kannski stuttur en myndafrekur er hann. En það er bara gaman.

Það getur verið skemmtilegt að punta sig með armböndum og öðru skarti en því miður er það nú ekki beint gefins. En það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt því flestar konur eiga að minnsta kosti eitt ef ekki tvö plastarmbönd einhversstaðar sem bíða þess að vera notuð.

Plast

 

Ég átti eitt svoleiðis en var hins vegar orðin hundleið á því. Þetta armband hafði séð betri daga og var silfraði liturinn farinn að flagna af. Því ákvað ég að gefa því smá andlitslyftingu og nota til þess afganga af garni. Ef þig langar að prufa þetta líka þá eru hér leiðbeiningar og að vanda hef ég þetta í máli og myndum.

Það sem þú þarft:

• Garn – Það skiptir engu máli hvernig garnið er svo fremi sem það er ekki of gróft því annars er hætta á því að þú komir hendinni ekki í gegnum armbandið.
• Prjónar sem henta garninu
• Armband – Ég hef átt mitt í fjölda mörg ár og man ekki einu sinni hvar ég fékk það.
• Nál til að sauma og ganga frá endum

Svona ferðu að:

1) Mældu armbandið eins og sýnt er á mynd
2
Þetta verður víddin sem þú þarft að prjóna.

2) Veldu þér munstur til að prjóna og byrjaðu að gera prufur. Ég notaði tvöfalt perluprjón í armbandið mitt en það eru í raun engin takmörk fyrir því sem þú getur gert. Þú þarft ekki margar tilraunir til að finna út hvað þú þarft margar lykkjur og ættir jafnvel að ná því í annari tilraun. Þetta þarf ekki að vera hárnákvæmt þar sem garnið gefur vel eftir þegar það hefur verið prjónað.

3) Prjónaðu þar til lengdinni er náð og þú nærð vel utan um armbandið með góðu móti.
3
4) Felldu af. Slíttu frá en gerðu ráð fyrir nægilega miklu garni til að sauma með. Eins og þú sérð á myndinni þá skildi ég eftir dágóðan spotta. Better safe then sorry.
4
5) Saumaðu uppfitjunarkantinn saman við affellingakantinn.
6) Settu efnið utan um armbandið og byrjaðu að sauma saman hliðarnar.
5
7) Saumaðu saman hliðarnar allan hringinn og gakktu síðan frá endum.

Svo er ekkert annað eftir en að setja það á þig og njóta nýja armbandsins.
6

Það skemmtilega við þetta er að þú getur notað afgangagarn í þetta og þú ert enga stund að prjóna utan um eitt stk. armband. Þetta er líka skemmtileg gjöf. Láttu sköpunargáfuna ráða för og leiktu þér með hin ýmsu prjónamunstur.

Góða skemmtun og mundu að kvitta þegar þú ert búin/n að lesa þennan pistil. Að sjá þín fótspor hér eru þau allra bestu laun sem ég get hugsað mér að fá fyrir þessa pistla. Því skaltu endilega kvitta og hvetja mig þannig áfram.

Föndurkveðja á línuna,
Tína


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283