Hún hefur setið í mér lengi, grein Sigmundar Davíðs frá því í fyrra, þar sem hann kvartaði undan loftárásum stjórnarandstæðinga og fjölmiðla. Hann er enn á sömu línu, hann og flokksmenn hans eru gífurleg fórnarlömb. Ég er varla einn um að taka eftir því að forsætisráðherra er gjarn á að nota ansi stór orð.
„Það er ekki langt síðan fyrsta hreina vinstristjórnin fór frá völdum eftir sögulegt tap í kosningum. Á meðan sú ríkisstjórn var að gera sínar bommertur leið varla sá dagur að við sem þá vorum í stjórnarandstöðu spyrðum ekki hvort annað „hvernig væri umfjöllun fjölmiðla ef ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefði gert annað eins?“ Svo var brosað að tilhugsuninni um hvers konar „loftárásir“ slík ríkisstjórn hefði fengið yfir sig vegna sambærilegra mála.“ - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á heimasíðu sinni seinasta sumar.
——
Rúmlega 1200 manns hafa boðað komu sína á útifund á Austurvelli í dag sem ber yfirskriftina Stöðvum loftárásir á Ríkisstjórnina. Félagið Ísland – Framsókn stendur að fundinum ásamt öðrum félagasamtökum.
Stjórnarandstæðingar hafa varpað níðsprengjum á forsætisráðherra og stuðningsmenn hans alveg síðan flokkur hans tók við stjórnartaumunum og hafa rúmlega 160 framsóknarmenn yfirgefið og hætt í flokknum.
Um fjögur þúsund Framsóknarmenn hafa flúið höfuðborgina, en ástandið er verst í 101 á svæðinu kringum Nasa við Austurvöll en þangað færist vígvöllur mestu bloggúthellinga sem átt hafa sér stað milli Framsóknarmanna og Íslendinga í tvö ár.
Bloggher herskárra vinstri manna, með dyggum stuðningi frá fréttastofu Ríkisútvarpsins og vígamanna innan háskólasamfélagsins, hefur nú í allt sumar látið svívirðingum og ásökunum um kynþáttahyggju rigna yfir Framsóknarmenn en fulltrúar Sameinuðu þjóðanna telja að um 77 prósent þeirra sem sakaðir hafa verið um rasisma í þessum bloggsprenginum séu saklausir borgarar.
Á Facebook-síðu útifundarins segir að þess verði krafist í dag að hernámi á Nasa-svæðinu ljúki og að Framsóknarmenn njóti verndar alþjóðasamfélagsins, bara ekki Evrópusambandsins því það eru hryðjuverkasamtök. Flokkurinn og kjósendur hans eru fórnarlömb mesta lágpunkts í stjórnmálaumræðu seinni tíma.
Á fundinum í dag munu þau Geirmundur Valtýrsson og Lúdó og Stefán flytja tónlist auk þess sem Guðni Ágústsson flytur ávarp. Fundarstjóri er Vigdís Hauksdóttir, formaður Íslands-Framsóknar.