Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trójuhestar

$
0
0

Það er fyllilega hægt að taka undir þá staðhæfingu að ekki skipti máli hver framkvæmir athugun, rannsókn, eða stendur fyrir umfjöllun. Sú staðhæfing er rétt. Og um leið og ég fagna allri umræðu um jafnréttismál, kvenréttindi, þá er mér nokk sama hver stendur fyrir slíku framtaki, ég bara fagna því.

En vandamálin verða til þegar fólk tengir saman óskyld mál.

Um daginn hlustaði ég á fyrrverandi félagsmálastjóra Hafnarfjarðarbæjar í viðtali á Útvarpi Sögu, í viðtali um umskurð og aðrar limlestingar kvenna og stúlkna. Ég get tekið undir með öllum þeim sem fyllast óhugnaði við fregnir af þeim hryllingi og þekki ég engan sem ekki gerir það. Allri umræðu um þessi mál ber að fagna.

En í lok viðtalsins þá spyr útvarpsstjóri, hin ágæta Arnþrúður Karlsdóttir sem ég met mikils, viðmælanda sinn, hvort það sé hennar skoðun að tempra þurfi innflutning fólks frá þessum löndum þar sem þetta viðgengst ?

Þarna hringja mínar bjöllur !!!!

Hér er sem sagt meiningin að fjalla af miklum eldmóði um konur sem eru fórnarlömb limlestinga en í framhaldi að leggja það til að tempraður verði innflutningur á þessum konum til landsins. Því þeim fylgi vandamál, nefnilega trúarbragðabrenglaðir menn sem limlesta konur.  Þeir eru vissulega til. En hvernig varð allt í einu viðtal við fyrrverandi félagsmálastjóra um limlestingar kvenna, að spurningu um að koma í veg fyrir að fórnarlömbum þessara glæpa, verði heimilað að setjast að á Íslandi ?

357618236_865bbfe828_b

Þetta er hættan þegar að blandað er saman óskyldum málum, eitt mál er bundið inn í annað. Trójuhesturinn er; hinar raunverulegu áhyggjur sérfræðings frá Hafnarfjarðarbæ yfir hræðilegri meðferð á konum, en inni í hestinum er áhugi fréttamannsins á að tempra fjölda innflytjenda sem eru múslimatrúar. Þess ber að geta að í kring um 25% alls mannkyns er múslimatrúar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283