Helgi Hrafn Gunnarsson skrifaði í dag eftirfarandi færslu á Facebook síðu sinni og gaf okkur leyfi til að birta hana hér.
Mig langar aðeins að segja fólki frá fyrirbæri sem heitir þunglyndi og algengum misskilningi í því sambandi. Fyrst aðeins um lífið og líðan almennt.
Það er eðlilegt að manni líði illa þegar aðstæður manns eru slæmar eða eitthvað slæmt hefur komið fyrir mann í lífinu. Ýmis félagsleg vandamál, peningavandamál svosem óhóflegar skuldir, húsnæðisvandamál eða áföll eru eðlilegar ástæður þess að manni líði illa og sé haldinn kvíða. Það er ekki gott að manni líði illa í þessum aðstæðum, en það er allavega rökrétt.
Munurinn á slíkum aðstæðum og þunglyndi er sá að þunglyndið tekur ekki endilega tillit til rökréttra ástæðna fyrir því að manni líði illa. Þunglyndi er ekki háð slæmum aðstæðum þótt slæmar aðstæður geri það því mun verra. Það er þess vegna sem þunglyndi er læknisfræðilegt hugtak. Manneskja sem þjáist af þunglyndi getur lifað mjög góðu lífi ef litið er yfir lífsgæðin sjálf. Hún getur verið rík, örugg, vinsæl og með góða, örugga vinnu, átt yndislega fjölskyldu og aragrúa af góðum, nánum vinum. En samt liðið hryllilega. Það er ástandið sem heitir þunglyndi.
Ekki reyna að láta þunglyndissjúkling útskýra hvað sé að honum ef hann getur ekki borið kennsl á það sjálfur. Þá er sennilega ekkert að sem hægt er að benda á. Þunglyndi er röklaus vanlíðan; afleiðing einskis nema mistaka heilans.
En til allra sem kannast við þetta ástand vil ég segja þetta. Gefðu læknunum og lyfjunum séns. Ef þér líður alltaf illa, jafnvel þegar þú lætur eins og þér líði vel; ef þér finnst sífellt eins og eitthvað hræðilegt sé u.þ.b. að fara að gerast, íhugaðu að tala við lækni og sálfræðing og taktu næstu skref með opinn huga í samráði við báða. Kannski er þetta eitthvað sem þú getur lagað í lífinu… en kannski ekki. Oft duga lyf eða viðtalsmeðferð til þess að halda manni nógu skýrum til þess að maður geti þá tekist á við hvað svosem það er sem raunverulega bjátar á, ef svo er. Kannski kemurðu ekki auga á réttu lausnirnar því þú hefur áhyggjur af röngum vandamálum. Og kannski er þetta bara bilun í heilanum á þér. Kannski er þetta blanda af þessum og fleiri þáttum. Það er ekki til ein lausn sem hentar öllum en það er ansi gott úrval af lausnum til staðar.
En hvað sem þú gerir, þá skaltu ekki útiloka lyfin sjálfkrafa bara vegna þess að þér er illa við að taka pillur eða finnst það ekki nógu náttúrulegt. Læknavísindin eru ekki fullkomin og enginn hefur sagt þau vera það en þau bjarga mannslífum. Þau björguðu mínu. Ég skulda þunglyndislyfjum líf mitt og sá má fara fjandans til sem finnur skömm í því.