Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fæðingarþunglyndi

$
0
0

Sængurkvennagrátur er mun algengari en fæðingarþunglyndi og er ekki alvarlegt mein. Margar konur upplifa depurð og vanlíðan eftir fæðingu barns. Þetta þunglyndi gengur undir ýmsum nöfnum, þriðja-dags-þunglyndi, sængurkvennagrátur og „baby blues“.

Grátur er helsta einkenni þessa. Það sem grætir sængurkonuna er oftast eitthvað smávægilegt: kona á sömu stofu fær að fara fyrr heim, eiginmaður kom of seint í heimsókn, svo dæmi séu nefnd.

Þetta ástand getur varað frá nokkrum klukkustundum til örfárra daga og síðan hverfur það jafn skyndilega og það hefst en í einstaka tilfellum getur það þróast í alvarlega átt.

Rannsóknir sýna að u.þ.b. 14% fæðandi kvenna á Íslandi fá þunglyndi svo fæðingarþunglyndi er einn algengasti kvillinn sem fylgir meðgöngu og fæðingu. Fæðingarþunglyndi fer ekki í manngreiningarálit, er ekki dekursjúkdómur, heldur getur komið fram hjá hvaða konu sem er. Þetta er heldur ekki afsprengi hraða nútímans.

Algengast er að fæðingarþunglyndi komi fram á fyrstu vikum og mánuðum eftir fæðingu barns en það getur einnig komið fram allt að hálfu ári síðar. Erfitt getur reynst að tímasetja hversu lengi ástandið varir og fer það gjarnan eftir því hvort konan fær einhverja hjálp eða ekki.

Hver eru einkennin?

Konu í fæðingarþunglyndi kann að finnast að hún hafi litla stjórn á lífi sínu. Eitthvað er ekki eins og það á að vera, en hún getur lítið við því gert. Konan getur verið hrædd og finnst oft eins og hún sé að missa vitið. Algeng fullyrðing þessara kvenna er: „Mér líður eins og ég sé að ganga af göflunum.“

Þar sem hugsanir og tilfinningar af þessum toga koma fram í tíma og lífi konunnar sem „á“ að einkennast af gleði og þakklæti, er hún gjarnan hljóð um vanlíðan sína.

Hún er hljóð vegna sektarkenndar. Hún finnur ekki fyrir nægri hamingju með nýfædda barnið sitt. Hún óttast álit og hleypidóma í umhverfi sínu. Ef ekkert er að gert getur vandamálið haldið lengi áfram og skilið eftir djúp spor.

Mynd af Flickr

Mynd af Flickr

Helstu einkenni þessa ástands eru:

Þunglyndi
Önuglyndi
Þreyta
Svefntruflanir
Lystarleysi – matargræðgi
Bjargleysi
Einmanakennd
Áhugaleysi
Kvíði

Mögulegir áhrifavaldar:

Til hagræðingar er hægt að skipta þeim í sálfræðilega þætti, líffræðilega þætti og samskiptaþætti. Það er einstaklingsbundið hvort og hversu mikil áhrif hver þáttur hefur.

Líffræðilegir þættir

Hormónabreytingar
Efnaskiptaójafnvægi
Erfið meðganga og fæðing
Brjóstagjöf
Fyrirtíðarspenna
Arfgengir þættir

Sálfræðilegir þættir

Væntingar til móðurhlutverksins
Persónuleikaeinkenni
Fyrri saga um sálrænan vanda
Nýir álagsþættir

Samskiptaþættir

Gæði hjónabandsins eða sambúðar
Kynlíf
Gæði stuðningskerfis sem konan býr við
Einstæð móðir
Samband móður og barns
Samband móður og annarra barna hennar

Bjargráð

Sjálfshjálp. Fyrsta skrefið til að takast á við þessa erfiðleika er að konan gaumgæfi ástand sitt. Eftirfarandi ráðleggingum geta konur tekið mið af til að byggja sig upp.

Sinna líkamlegum þörfum sínum. Tryggja sér næga hvíld, borða hollan mat reglulega og stunda líkamsrækt sem hentar.

Skipulögð stuðningskerfi. Slá ekki á útrétta hjálparhönd. Virkja þá sem standa næstir til þeirra verka sem reynast erfið, húsverk og umönnun barnsins.

Rjúfa einangrunina. Taka sér hvíld frá ungabarninu. Enginn getur unnið sleitulaust. Fá einhvern til að gæta barnsins stund og stund þannig að hægt sé að sinna að einhverju leyti félagslegum þörfum. Einvera getur verið óæskileg.

Reyna að tjá og takast á við neikvæðar tilfinningar. Það er ekkert óeðlilegt að líða ekki alltaf vel þegar verið er að aðlagast nýjum aðstæðum. Reyna að hugsa jákvætt.

Gera ekki óraunhæfar kröfur. Enginn gerir alla hluti óaðfinnanlega.

Skipuleggja daginn. Gera lauslegar áætlanir um hvernig á að eyða deginum.

Taka ekki afdrifaríkar ákvarðanir. T.d. slíta sambúð, selja húsið, skipta um starf, í það minnsta kosti ekki fyrr en náð er góðu jafnvægi.

Full ástæða getur einnig verið að leita ráðgjafar og meðferðar hjá sálfræðingum eða geðlæknum.

Þá er í boði samtalsmeðferð og lyfjagjöf.

Heimild: Fæðingarþunglyndi eftir Rögnu Ólafsdóttur sálfræðing.

Baby feet ljósmynd eftir Sean Dreilinger


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283