Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Líkamsmynd og virðing fyrir fjölbreytileika

$
0
0

Árið 2009 hófst rannsókn á árangri námskeiðs sem nefnist Body Project og var hluti af meistaranámi mínu í sálfræði við Háskóla Íslands. Höfundur námskeiðsins er Eric Stice, en hann er prófessor við háskólann í Austin, Texas í Bandaríkjunum. Námskeiðið byggir á meira en 16 ára rannsóknarvinnu á áhættuþáttum átraskana.

Leiðbeinandi minn í rannsókninni var Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur. Okkur Sigrúnu þótti mikilvægt að hefja rannsókn á árangri námskeiðs til að styrkja líkamsmynd og minnka átröskunarhegðun stúlkna þar sem tíðni slæmrar líkamsmyndar meðal unglingsstúlkna er há í okkar samfélagi þar sem áhersla á útlit og líkamsvöxt er mikil.

Tiltekið vaxtarlag, eins og grannur líkami kvenna, er talið ásættanlegra eða fallegra en annað. Þessi mikla áhersla á útlit bitnar á þeim börnum og unglingum sem ekki telja sig uppfylla skilyrðin um fallegan líkamsvöxt

Neikvæð viðhorf til þeirra sem eru yfir kjörþyngd, stríðni vegna útlits og þrýstingur um grannan vöxt hefur einnig slæm áhrif á líkamsmynd. Þar sem margir uppfylla ekki skilyrðin um hinn fullkomna vöxt er tíðni slæmrar líkamsmyndar nokkuð há. Slæm líkamsmynd er einn af megin áhættuþáttunum í þróun átraskana og því mikilvægt að huga að líkamsmyndinni eða hvernig börn og unglingar líta á sjálfa sig til að bæta líðan þeirra.

Undanfarin ár eða áratugi hafa forvarnir gegn átröskunum byggt á reynslusögum og upplýsingum á því hvað einkennir átraskanir. Fyrir ekki svo löngu síðan var til að mynda  nokkuð algengt að sýna unglingum heimildamyndir um átraskanir. Slík tegund forvarna ber engan árangur og getur í verstu tilfellum jafnvel haft skaðleg áhrif. Fyrir börn og unglinga sem eru þegar komin í áhættu, til dæmis fylgja ströngum reglum um mataræði, getur slík forvörn virkað sem eins konar leiðbeiningabæklingur.

Rannsóknir á forvörnum gegn átröskunum sýna að forvarnir sem fjalla í raun ekkert um átröskun virka vel. Námskeiðið sem við Sigrún rannsökuðum kemur ekkert inn á átraskanir. Í staðinn er farið í áhættuþættina, til að mynda er rætt um fegurðarviðmið nútímans og þau gagnrýnd, rætt er um áhrif fjölmiðla og fjölbreytileika vaxtarlags.

Niðurstöður tveggja rannsókna hér á landi sýna að námskeiðið hefur jákvæð áhrif. Átröskunareinkennum stúlknanna fækkaði, þær aðhylltust síður grannt vaxtarlag, megrunarhegðun minnkaði og líkamsmynd þeirra batnaði. Þessar niðurstöður boða gott en mikilvægt er að halda rannsóknum áfram, sérstaklega til lengri tíma. Einnig er mikilvægt að hefja vinnu á efni sem nær til drengja, en þeir eru ekkert undanskildir þeim þrýstingi sem er í samfélaginu um ákveðið vaxtarlag. Drengir finna vel fyrir því að ákveðið vaxtarlag er talið eftirsóknarverðara, t.d stæltur vöxtur. Sinna þarf því drengjum vel þótt tíðni átraskana sé hærri hjá stúlkum, drengir geta fest í annars konar vítahring útlitsbreytinga.eb

Góð líkamsmynd og betri virðing fyrir fjölbreytileika okkar hvað varðar útlit og líkamsvöxt er því mikilvæg. Þann 13. mars árið 2012 voru stofnuð Samtök um líkamsvirðingu. Samtökin hafa það að markmiði að stuðla að virðingu fyrir fjölbreytileika holdarfars, jákvæðri líkamsmynd og heilsueflingu óháð holdarfari.

Það er von okkar í samtökunum að samfélagið geti samþykkt alla líkama og að heilsuefling fari að snúast meira að vellíðan og umhyggju fyrir líkamanum í stað þess að snúast að mestu um útlitið. Með því að auka virðingu okkar fyrir alls konar líkamsvexti getum við vonandi minnkað tíðni átraskana og bætt líðan og líkamsmynd barna og unglinga.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283