Gosið sem hafið er í Holuhrauni norðan Dyngjujökuls er við annan enda hins 40 kílómetra langa berggangs sem hefur verið að myndast í skjálftaóróanum undanfarnar vikur. Þetta virðist vera rólegt gos segja vísindamenn. Talið er að berggangurinn innihaldi um 350 milljónir rúmmetra af hrauni svo nægur er efniviðurinn. 1797 var síðast gos í Holuhrauni.
Til þess að við gerum okkur grein fyrir hversu mikið efni er þarna á ferðinni þá hefur Steypustöðin síðan 1947 eða í um 67 ár framleitt 3 milljónir rúmmetra af steypu til mannvirkjagerðar á Íslandi.
Hér má skoða vefmyndavél Mílu sem sýnir gosið. Mynd efst í grein er af vef ÍSOR.