Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Linda Pétursdóttir skrifar í Kvennablaðið í vetur

$
0
0

Lindu Pétursdóttur  hjá Baðhúsinu þarf vart að kynna en Linda er sérleg áhuga- og fagmanneskja um vellíðan kvenna á öllum aldri.  Í vetur mun Linda slást í hóp frábærra höfunda sem skrifa í Kvennablaðið.

Linda mun skrifa á persónulegum nótum um andlegu hliðina og hversdagsundrin sem við upplifum öll. Mikilvægi þess að ná innri sátt og frið í sálina.

linda

Linda er opinská og persónuleg í sínum skrifum og munu skrif hennar eflaust vekja athygli margra enda á Linda stað í hjarta þjóðarinnar. Linda býr yfir hafsjó af fróðleik um útlit og heilsu og mun gefa okkur góð ráð sem og að benda okkur á áhugaverða hluti sem tengjast andlegri og líkamlegri vellíðan kvenna.

Kvennablaðið er himinlifandi yfir því að fá að njóta krafta Lindu í vetur. Fyrsti pistill Lindu mun birtast innan tíðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283