Hreyfingin BDS Ísland – sniðganga fyrir Palestínu, var stofnuð á dögunum. Tilgangur hreyfingarinnar er að svara alþjóðlegu ákalli Palestínumanna um sniðgöngu og þvinganir gegn ísraelskum stjórnvöldum. Markmiðum hreyfingarinnar telst náð þegar Ísrael fer að alþjóðalögum og viðurkennir grundvallarréttindi Palestínumanna.
Ákallið leggur áherslu á að þvinga Ísrael til að fara að alþjóðalögum og:
a) stöðva hernám og nýlendustefnu á öllu arabísku landi sem hernumið var í júní árið 1967 og fjarlægja aðskilnaðarmúrinn;
b) viðurkenna grundvallarréttindi þeirra borgara í Ísrael sem teljast sem Palestínu-arabar og veita þeim full réttindi á við aðra borgara; og
c) virða, vernda og stuðla að réttindum palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til sinna heimkynna og til sinna eigna, eins og samþykkt Sameinuðu þjóðanna nr. 194 gerir ráð fyrir.
Í fyrra voru fluttar inn vörur frá Ísrael fyrir tæpar 720 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Eingöngu á fyrstu sex mánuðum þessa árs var flutt inn fyrir rúmar 377 milljónir króna.
BDS Ísland – sniðganga fyrir Palestínu, hefur opnað heimasíðuna www.snidgongumisrael.is þar sem finna má frekari upplýsingar um hreyfinguna, þar sem hinum ýmsu spurningum er svarað og þar sem upplýsingar um ísraelska framleiðslu á Íslandi er safnað saman til þess að gera sniðgönguna eins auðvelda fyrir almenning og hægt er.
Hreyfingin mun á næstu dögum fara í frekar aðgerðir til þess að stuðla að því að innflutningur á ísraelskri framleiðslu muni minnka hér á landi, en fjármálaráðherra Ísraels hefur lýst yfir að ef Evrópubúar halda áfram að sniðganga vörur frá Ísrael muni efnahagurinn þeirra hljóta mikinn skaða af.
Stjórn hreyfingarinnar er skipuð eftirtöldum:
Sema Erla Serdar, formaður
Yousef Ingi Tamimi, aðgerðastjóri
Oddur Sigurjónsson, gjaldkeri
Arna Ösp Magnúsardóttir, vefari
Steinunn Rögnvaldsdóttir, ritstjóri
Qussay Odeh, alþjóðafulltrúi
Elsa Dóróthea Daníelsdóttir, listrænn stjórnandi
Linda Ósk Árnadóttir, tengiliður við Félagið Ísland-Palestína