Úr því að ekkert er eins hvetjandi fyrir hagkerfið og að lækka skatta – af hverju erum við þá að burðast með einhverja skatta?
Úr því að eftirlitsiðnaðurinn er svona hroðalega dýr – af hverju erum við þá með löggur og saksóknara og tugthús og allt þetta eftirlitsvesen.
Úr því að það borgar sig að skera niður við Sérstakan og rannsóknarnefndir eru svona hryllilega dýrar – af hverju erum við þá að velta okkur upp úr því þótt einhverjar þúsundir milljarða hverfi út í buskann öðru hverju og einhver geri kannski eitthvað stundum sem einhver hefði kannski ekki átt að gera?
Alvörufrjálshyggja hefur ekki fengið að njóta sín á Íslandi síðan á landnámsöld, en þá var ekkert félagslegt kjaftæði í gangi og enginn þurfti á menningu að halda og duglegir menn fóru bara í útrás og víkingaferðir bæði til að sjá sig um í veröldinni og til að hagnast eitthvað smá – af hverju stútum við þá ekki þessari velferðarvitleysu á einu bretti og tökum aftur upp frjálshyggju eins og á landnámsöld?
Þá voru allir lukkulegir nema kannski einhverjir þrælar og ambáttir. Hagfræðinni hefur ekki farið fram síðan á víkingaöld og það er víkingahagfræðin sem blífur!