Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fettucine með parmaskinku, valhnetum og klettasalati

$
0
0

Þetta er einfalt og fljótlegt að matreiða og alveg ótrúlega gott. Makalaust hvað valhnetur og parmaskinka bragðast vel saman.

valhnetur

2 pakkar Pastella Fettuccine Naturel 250 g
100 g valhnetur
100 g klettasalat
140 g parmaskinka eða hráskinka
Góð ólífuolía
2 dl. Grænmetissoð

parma-ham-3_12993

Hakkið valhneturnar gróft og látið til hliðar. Þvoið klettasalatið, þurrkið og saxið gróft. Skerið parmaskinkuna í strimla. Látið dálitla ólífuolíu á stóra pönnu og steikið valhnetur og parmaskinku í 5-6 mínútur. Hellið soðinu út á og látið malla vel. Eldið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum á meðan. Takið pastað úr vatninu og setjið á pönnuna. Blandið klettasalatinu við og berið strax fram.

Verði ykkur að góðu!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283