Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Olíur á andlitið, hárið og allan líkamann

$
0
0

Nú eru margir snyrtivöruframleiðendur að setja á markaðinn húðolíur og því fengum við Heiðar Jónsson til að ræða við okkur um þetta olíuæði og þá var kannski rétt að spyrja – Hvað kemur til að það er allt í einu gott að bera olíur á andlitið? Hingað til hefur maður forðast það að nota olíur á húðina í andlitinu.

heidar5175_2

Heiðar: Hér áður fyrr var mælt með því að konur forðuðust vörur sem innihéldu olíu en nú er sagan önnur. Ég hef alltaf verið svolítið umdeildur að tala fyrir því að bera olíu á húð sem er olíurík fyrir og á þetta einnig við um hár. Ástæðan er að ofmata olíumettaðan flöt með meiri olíu, það hægir oft á umfram olíuframleiðslu. Þessi olíu andlitskrem eru fyrir alla húð, nema hvað þurra húðin þarf þau oftar og meira. Munum að vatn og olía blandast ekki saman. Það þýðir að feit húð verður fyrir jafn miklu rakatapi í kulda og sú þurra.Olíukremið myndar verndandi húð gegn því að rakinn gufi upp og svo má bara hreinsa það sem eftir er af því, þegar inn er komið.

IMG_3345

En olíur eru svo þykkar, verður maður ekki bara háglansandi allan daginn?

Heiðar: Nei alls ekki. Margir viðskiptavinir spyrja, „er þetta oil-free?“. Finnst þetta alltaf dálítið erfitt, því að ég veit um svo margar olíur, sem eru í dag hreinar af öllum þessum ertandi efnum, sem verið hafa í eldri minna hreinsuðum olíum, væru svo góðar fyrir margt af þessu fólki. Í dag hafa verið miklar framfarir í notkun olíu í snyrtivörum. Þær eru ekki þykkar eins og mögulega margar ykkar halda heldur hafa snyrtivörumerki þróað léttar og þunnar olíur sem fara hratt inní húðina og skilja lítið annað eftir sig en mjúka og þægilega húð. L’Oreal setti t.d á markað fyrir stuttu fjórar nýjar vörur sem innihalda olíu og leitast við að koma jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, hreinsa húðina, næra hana og geta hægt á öldrun hennar.

Fyrir hvaða aldursflokk henta þessar vörur?

Heiðar: Þegar húðin er ungleg, geislandi og í sínu besta formi eins og þín þá eru húðfrumurnar tengdar saman með gnægð af olíum. En þegar við eldumst þá framleiðir húðin okkar minna magn af olíum sem gefa okkur hina fullkomnu húð sem er full af glóð. Þegar olíur eru bornar á húðina, þá dragast þær strax inn undir efsta lag húðarinnar, þar sem þær hefjast strax handar til að betrum bæta blóðflæðið. Yfirleitt strax við fyrstu notkun sérð þú gríðarlegan árgangur á húðinni þinni. Eftir mánaðar notkun hefur húðin fengið á sig geislandi yfirbragð og verður heilbrigð. Vörurnar henta því konum á öllum aldri. Þessi olíukrem eru bæði frábær á unglingana í kuldanum og olíukremin eru frábær fyrir þá sem þola illa klórinn í sundlaugunum og fyrir sjósundsfólkið auðvitað.

Nú þekkir þú vel vörurnar frá L’Oreal sem eru á viðráðanlegu verði miðað við mörg snyrtivörumerki. Með hvaða vörum mælir þú í línunni þeirra?

nutrigold2_5331f7d8ddf2b35f820fcb04

Heiðar: Ég mæli heilshugar með Nutri Gold Extroaordinary sem er nýleg húðvörulína frá L’Oreal sem einkennist af olíum. Hún er stútfull af náttúrulegum olíum sem unnar eru úr rósmarin, lavender, arganolíu, sheabutter, royal jelly og hvítu jasmin og rós.  Bæði er fáanleg olía fyrir húðina sem er mælt með að sé notuð undir krem en einnig er rakakrem sem má nota sem dag- og næturkrem en kremið inniheldur örfínar olíuagnir sem næra húðina vel. Að nota olíu á undan virkum kremum getur komið í veg fyrir óþægindi af völdum þeirra. Einnig hefur það að setja fyrst olíu á húðina reynst vel þegar virk krem eru notuð þar sem olían greiðir leið fyrir virku kremin að komast lengra inní húðina. Svo það má segja að það að nota olíur geti hægt á öldrun húðarinnar.

Þannig að þessi lína er upplögð fyrir þær konur sem vilja sporna við hrukkumyndun?

Heiðar: Þegar fínar línur fara að dýpka þýðir það að það er að hægjast á olíuframleiðslu húðarinnar og hún er að missa raka. Með því að nota krem sem innihalda meiri olíu en önnur getið þið komið jafnvægi á húðina með því að auka olíurnar í henni. Olíuagnirnar sem Nutri Gold kremið inniheldur gerir það að verkum að olían kemst lengra inn í húðina og þegar agnirnar hitna ná þær yfir stærri svæði og næra því húðina betur.

image002-2

Það er líka hreinsiolía í þessari línu? Hvernig er best að nota hana?

Heiðar: Hreinsiolían frá L’Oreal, Sublime Glow Cleansing Oil er einföld í notkun. Þið þurfið lítið magn af henni, spautið smá af olíunni í lófann ykkar og nuddið olíunni saman við húðina. Gefið ykkur góðan tíma og hreinsið olíuna svo vel af húðinni. Eftir notkun er húðin mjúk og þægileg áferðar og eins og nafn vörunnar gefur til kynna þá er hún ljómandi. Mörgum finnst ef til vill undarlegt að notast við olíuhreinsi þegar þrífa á húðina og ef til vill halda margir að það að nota olíu muni auka olíumagn húðarinnar. Þvert á móti þá leitast olía í húðvörum við að koma jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar og koma húðinni um leið í gott jafnvægi. Eftir að hafa hreinsað húðina með olíuhreinsi á ekki að þurfa að nota nærandi krem. En ef þið finnið fyrir þurrk í húðinni þá er mælt með því að nota næringarríkt krem stuttu seinna. Þá liggur augum uppi að mæla með notkun á Nutri Gold Extraordinary rakakreminu.

Það má þó ekki gleyma restinni af húðinni og olíu vörur fyrir líkamann hafa verið vinsælar í sumar. Olíur mýkja að sjálfsögðu húðina vel en einnig gefa þær fallega og ljómandi áferð.

Sublime Body Royal Nutrition olíuspreyið fyrir líkamann er líka nýtt frá L’Oreal. Hverjir eru kostirnir við að nota það?

Heiðar: Olían er frábær á líkamann og smitar ekki í föt. Olíuna má bera á húðina eins oft og ykkur finnst þurfa yfir húðina. Að nudda olíu yfir húðina rétt fyrir svefn getur einnig hjálpað ykkur að slaka vel á og sofa þar af leiðandi betur. Að bera olíu á húðina eftir sturtu getur haft góð áhrif á hana. Verið duglegar að bera olíu á þurr svæði húðarinnar eins og olnboga, hné og hæla. Og eins og ég sagi góðar fyrir þá sem synda í laugum og sjó.

20111216-124-v2

Og þá er bara hárið eftir. Olía í hárið? Einhverntímann hefði manni fundist það skrýtið?

Heiðar: Hárolíur hafa notið gríðarlegra vinsælda og á stuttum tíma hefur þessi hárvara orðið skyldueign íslenskra kvenna. Extraordinary Oil fyrir hárið frá L’Oreal má bera í rakt hárið eftir hárþvott en það auðveldar það þegar þið greiðið úr hárinu. Olíuna má nota sem hitavörn þegar þið blásið á ykkur hárið. Einnig má nota hana í þurrt hár til að lífga uppá hárið áður en þið farið eitthvað fínt út eða bara í skóla og vinnu. Hárið okkar mætir alls kyns utanaðkomandi áhrifum á hverjum degi sem getur orðið til þess að skemmdir myndist í hárinu, það þornað og slitnað.

Og með þessum orðum þökkuðum við Heiðari fyrir spjallið og dásömuðum lyktina af olíunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283