Framleiðslufyrirtækið Sagafilm heldur flóamarkað í húsakynnum sínum við Laugaveg 176 (gamla sjónvarpshúsið) á laugardaginn. Þarna verður ýmislegt spennandi í boði sem hefur komið við sögu í 36 ára sögu fyrirtækisins.
Sagafilm auglýsir eftir nýjum eigendum að leikmunum, fatnaði, tækjabúnaði og fleiru sem safnast hefur upp í farsælli og fjölbreyttri sögu fyrirtækisins. Þar er ýmiskonar fatnaður, búningar, eldhúsáhöld, húsgögn, raftæki, leikföng og margt, margt fleira. Innan um verða einstakir og eftirminnanlegir leikmunir úr auglýsingum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum framleiddum af Sagafilm. Kvennablaðið veltir fyrir sér hvort Læðan hans Ólafs verði á markaðnum.
Starfsfólk Sagafilm mun einnig bjóða upp á allskyns hluti og fatnað úr eigin fórum og taka vel á móti gestum.
Flóamarkaðurinn verður eins og áður sagði í húsakynnum Sagafilm, Laugavegi 176. Opið milli kl 13 og 17.