Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hysteríusýking forsætisráðherra

$
0
0

Í Kastljósi gærkvöldsins varð forsætisráðherra tíðrætt um matvælaöryggi og lýðheilsu. Hann sagði meðal annars að heilbrigðismál og matvælaöryggi væru ekkert til að grínast með og máli sínu til stuðnings sagði forsætisráðherra:

„Það er ekki langt síðan að það kom upp mjög alvarlegt mál í Danmörku bara fyrir tveimur vikum síðan, þar sem fjöldi fólks lést og þúsundir, tugþúsundir sýktust vegna sýkingar í matvælum.“

Ekki er gott að átta sig á því hvað forsætisráðherrann á við því á síðu danska heilbrigðisráðuneytisins er ekkert að finna um viðlíka útbreiðslu sýkinga er ráðherra greindi frá.

Reyndar hafa komið upp fjögur tilfelli af mislingum í ágúst en væntanlega er Sigmundur Davíð að vísa til listeríusýkingar sem rekja mátti til rúllupylsuáts en samkvæmt heimildum hafa nú á árinu þrettán manns látist í Danmörku vegna sýkingar sem rekja má til listeríusýkingar í rúllupylsu og taka verður fram að allir þeir einstaklingar voru með undirliggjandi sjúkdóma.

Screen Shot 2014-09-12 at 12.40.44 e.h.

Alls hafa 34 tilfelli verið staðfest í Danmörku og fer því fjarri að þúsundir jafnvel tugþúsundir hafi sýkst. Ár hvert greinast um 50 tilfelli vegna listeríusýkingar í Danmörku.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283