Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Saumað að valdstjórninni

$
0
0

Í morgun lauk aðalmeðferð í máli Hraunavinanna níu sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði fyrir brot á lögreglulögum vegna mótmæla í október á síðasta ári. Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir verjandi umhverfissinnanna telur að nímenningarnir eigi skaðabótakröfu á hendur ríkinu fyrir frelsissviptingu og því að sæta einangrunarvist samkvæmt frétt Morgunblaðsins um málið.

Ragnhildur saumar út á lögreglustöðinni við Hverfisgötu

Ragnhildur saumar út á lögreglustöðinni við Hverfisgötu

Einn Hraunavinanna, Ragnhildur Jónsdóttir náttúruunnandi, sem var handtekin saumaði út á biðstofu lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu áður en hún var sett í einangrun. Handavinnan og taska sem geymdi bróderíið var tekin af henni áður en hún fékk að dúsa í einangrunarklefanum.

Kvennablaðinu lék hugur á að vita hvort lögreglan hefði talið að valdstjórninni eða jafnvel Ragnhildi sjálfri stæði ógn af saumaskapnum?

Ragnhildur: Nei, það held ég ekki en þegar maður fer í einangrunarklefa þá er allt tekið af manni, yfirhafnir, skartgripir og allir lauslegir munir. Gleraugu voru tekin af einni okkar sem sér lítið án þeirra og þurfti hún því bara að liggja fyrir með lokuð augun. Maður spyr sig hvað hefði verið gert ef eitthvert okkar hefði verið með gervifót.

Ragnhildur var handtekin í tvígang en eiginmaður hennar sem einnig er Hraunavinur slapp við handtöku í síðara skiptið. Hvers vegna skyldi það hafa verið og kann Ragnhildur einhver svör við því?

Ragnhildur: Í seinna skiptið voru bara níu manns handteknir og ég velti því fyrir mér hvort það sé vegna þess að aðeins hafi verið níu klefar lausir. Maðurinn minn var ekki handtekinn í síðara skiptið og ég held að það sé vegna þess að hann er töluvert þungur og stór. Lögreglan reyndi að taka hann upp en einn lögreglumanna heyrðist segja við átökin sem fylgdu því að lyfta honum: Nei, við nennum þessu ekki.

Ég tel að ef hann hefði verið léttari þá hefði hann verið handtekinn.

10659171_10152700087953630_6051006849710334870_n

Ljósmynd DV

Hvernig upplifun var að vera handtekin við slíkar aðstæður?

Ragnhildur: Þetta var ógnvekjandi þegar þeir birtust 60 talsins svartklæddir og vopnaðir kylfum og gaskútum. Ég hringdi í Neyðarlínuna og bað um aðstoð en þar sem lögreglan var sjálf að ógna okkur fékkst engin hjálp frá Neyðarlínunni.

Í réttarsalnum í gær og í dag sátu sumar af nímenningunum og prjónuðu og var gert að hætta prjónaskapnum því dómara fannst ónæði af slætti prjónanna og benti á að hljóðin trufluðu upptökur í réttarsal. Þær voru beðnar að prjóna lægra enda prjónaskapur óvanalega hávaðasöm iðja eins og allir vita. Kvennablaðið spurði Ragnhildi hvort Hraunavinir stunduðu prjónaskap af ásettu ráði í mótmælaskyni og Ragnhildur sagði það að hluta til rétt tilgáta þótt reyndar iðki konurnar í hópnum einhverja handavinnu alla jafna.

Ragnhildur: Við höfum verið að prjóna, hekla, sauma og teikna úti í hrauni. Handavinna er skapandi starf og það stafar yfirleitt ekki mikil ógn af þeim sem prjónar eða saumar út og með handavinnunni höfum við kannski verið að vekja athygli á því að við erum friðelskandi rólyndisfólk og áttum ekki skilið þessa meðferð.“

Screen Shot 2014-09-12 at 06.17.48 e.h.

Ljósmyndin hér fyrir ofan sýnir útsaumsmyndina sem Ragnhildur kallar „Í hrauninu og á Hrauninu.“ Myndin var saumuð út í Gálgahrauni, í Hellisgerði og Lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Á mynd er einnig taskan góða sem Ragnhildur notar fyrir handavinnu og tekin var af henni. Takið eftir að á límbandinu sem límt er á töskuna stendur að það geti varðað sex mánaða fangelsi ef maður fjarlægir það. Þetta hlýtur að vera hættulegasta handavinnutaska í heimi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283