Dagmar Agnarsdóttir varð í dag Íslandsmeistari í kraftlyftingum í flokki kvenna 60 ára og eldri. Dagmar er fædd árið 1952 og því 62 ára gömul. Dagmar hefur æft kraftlyftingar undir stjórn Ingimundar Björgvinssonar þjálfara sem hefur komið margri konunni í hörkuform. Það er greinilega aldrei of seint að byrja! Kvennablaðið óskar Dagmar til hamingju með árangurinn!