Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér hvernig þú gætir mögulega náð uppfitjun og affellingu í handprjóni þannig að það líkist sem mest þessu tvennu á vélprjónaðri flík? Uppfitjunin og affellingin virðist hvergi byrja né enda. Í pistlinum í dag ætla ég að sýna þér hvernig þú getur náð svo útlítandi uppfitjun. Í næstu viku förum við í affellinguna.
Ég veit ekki til þess að þessi uppfitjun eigi sér íslenskt nafn og því skulum við bara kalla hana „ósýnilegu uppfitjunina“. Láttu mig vita ef þú veist um betra eða rétt heiti.
Þessi uppfitjun er tilvalin til notkunar þegar prjóna á stroff sem er 1 slétt, 1 brugðin eða 2×2 og er frekar auðvelt að framkvæma hana.
Það að hún sé ósýnileg er einn kostur en annar kostur er hvað hún er afskaplega teygjanleg. Því hentar hún einkar vel þegar prjónaðir eru sokkar t.d.
Að venju mun ég styðjast við margar myndir þannig að það verði auðveldara fyrir þig að prufa.
Fitjaðu upp um 15 lykkjur með ruslgarni í lit sem aðgreinist vel frá aðallitnum og sem er í sama grófleika eða mjög svipuðum og aðalgarnið. Vertu með nægjanlega mikið til að prjóna að minnsta kosti fimm umferðir og endaðu með umferð á réttunni.
Ef þú værir að fara eftir uppskrift þá mundir þú fitja aðeins upp á helming lykkjanna sem uppskriftin segir til um . Prjónaðu því næst 4 umferðir í aðallit. Fjórar til fimm umferðir eru yfirleitt nóg. Ef garnið er fínna þá gætir þú þurft tvær umferðir í viðbót.
Snúðu rönguna að þér og þú sérð áberandi skil. Á myndinni sérðu að ein umferðin er eins og tvílit. Það sem þú þarft að gera er að taka upp neðri hlutann af umferðinni (hjá mér grátt). Prjónaðu fyrstu lykkjuna brugðna.
Finndu allra fyrstu lykkjuna sem er í aðallit. Rauða örin sýnir hvar hún er hjá mér.
Pikkaðu hana upp, annað hvort með hægri eða vinstri prjón og settu hana á vinstra prjóni.
Prjónaðu því næst eina brugðna lykkju (næsta lykkjan sem er á vinstri prjón) og taktu svo upp eina eins og áðan og prjónaðu hana slétt. Endurtaktu þetta til skiptis út umferðina.
Stundum getur verið smá mál að finna síðustu lykkjuna sem á að taka upp. Teygðu bara örlítið á stykkinu og þá kemur hún í ljós (rauða örin sýnir hvar hún er). Gættu bara að því að lykkjan sem þú tekur upp sé í aðallit og að þú sért bara að taka hana upp. Prjónaðu að lokum eina brugðna.
Hér sérðu hvernig þetta lítur þá út. Það glittir í brugðnu lykkjurnar inn á milli sléttu lykkjanna.
Svona er þetta á réttunni.
Prjónaðu eina til tvær umferðir og klipptu neðra stykkið síðan frá. Þú mátt líka alveg geyma það þar til síðar, þitt er valið. En þegar þú ætlar að klippa hann frá snýrðu röngunni að þér og teygir svolítið á þannig að síðasta umferðin sem þú sérð prjónaða með ruslgarninu sjáist vel eins og þú sérð hér á myndinni. Rauða örin sýnir hvar á að klippa.
Klipptu á en gættu þess að klippa ekki í aðallitinn. Gerðu þetta alla leið lykkju fyrir lykkju. Fjarlægðu svo tægjurnar sem kunna að verða eftir.
Taraaaaaaaaaaaaa hrikalega flott!!!!
Hérna er svo mynd tekin neðan frá og eins og þú sérð þá er uppfitjunin ósýnileg.
Þetta má alveg gera með réttunna að þér í stað röngunnar eins og hér var gert. Það eina sem er frábrugðið er að prjóna lykkjurnar sléttar sem eru á prjóninum en brugðnar sem þú tekur upp. Ef þú vilt enn meiri teygjanleika þá getur þú prjónað fyrstu 4 umferðirnar í aðallitnum á stærri prjóna en beðið er um.
En hversu margar lykkjur þarftu þá að fitja upp? Ef þú horfir á stykkið á röngunni, þar sem litirnir mætast, þá sérðu að það er einni lykkju færri sem hægt er að taka upp en voru fitjaðar upp upphaflega. Þannig ef þú hefur fitjað upp 8 lykkjur þá verða þær 7 sem þú getur tekið upp. Ef uppskriftin segir að þú eigir að fitja upp 29 lykkjur: 29/2=14,5. Þú rúnar þá upp í næstu sléttu tölu og fitjar upp 15 og tekur upp 14 sem gerir samtals 29 lykkjur.
Ef þú þarft slétta lykkjutölu þá er tvennt sem þú getur gert. Annað hvort fitjað upp helming lykkjanna og aukið út um eina í lokinn þegar þú ert að taka upp lykkjurnar, eða þú fitjar upp á eina aukalykkju og framkvæmir þá úrtöku í lok upptöku umferðar.
Ef þú ert síðan að prjóna 2×2 stroff (2 sléttar, 2 brugðnar), þá gerir þú allt eins nema þú byrjar á því að prjóna 2 sléttar og tekur því næst upp 2 lykkjur sem þú prjónar brugðnar. Þetta endurtekur þú til skiptis út umferðina.
Læt hér staðar numið og vona að þú munir eftir mér og kvittir. Að sjálfsögðu vona ég líka að þú hafir gaman af þessu.
Ósýnilegar kveðjur á línuna.
Tína