Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Um tískuklæðnað fyrir leiðtoga

$
0
0

– Fötin skapa manninn.

Jose Mujica forseti Úrúgvæ.

Jose Mujica forseti Úrúgvæ.

Fyrir utan hinn elskulega fyrrum vígamann sem nú er forseti í Úrúgvæ og virðist ævinlega vera nýkominn frá því að fá sér lúr á bekk í almenningsgarði gera allir sem berjast um æðstu stöður í stjórnmálum sér það ljóst að þeir verða að beygja sig fyrir kröfum auglýsingastofa og spunadoktora um „staðlaðan klæðaburð“ sem fellur flestum kjósendum í geð og styggir fæsta.

Hér eru keppinautarnir Stefan Löfven og Fredrik Reinfeldt sem takast nú á um landsstjórnina í Svíþjóð. Báðir í dökkleitum jakkafötum með nokkurn veginn einlit bindi (allavega ekki með glannalegum, litskrúðugum munstrum).

tveir

Löfven skírskotar varlega til vinstri með rauðleitu bindi. Reinfeldt með íhaldsblátt. Löfven er í soldið krumpuðum jakkafötum sem virðast vera keypt af herðatrénu í góðri herrafataverslun. Reinfeldt er í klæðskerasaumuðum fötum með amerísku sniði á boðungunum, úr dýru efni sem gljáir ofurlítið, og kostar sitt. Báðir í einlitum skyrtum. Löfven í ljósblárri eins og var alsiða í pólitík áður en háskerpuútsendingar hófust í sjónvarpi og Reinfeldt í snjakahvítri skyrtu sem í háskerpusjónvarpi undirstrika að hann fylgist með tækninni og kann að vera fínn í tauinu. Reinfeldt er ekki með barmmerki og styggir því engan. Löfven er með ofurlítið merki á jakkaboðungnum, sennilega kratamerkið, til að undirstrika trúnað sinn við diet-vinstristefnu sænskra krata.

Á næstu mynd eru svo aðalstrumparnir, íhaldsdrengurinn Cameron forsætisráðherra Bretlands og tamdi blökkumaðurinn Obama forseti Bandaríkjanna, báðir í einlitum dökkleitum jakkafötum (og hvorugur leggur í glansefnið sem Reinfeldt klæðist því að það kann að virka nokkuð léttúðugt á einhverja).

Screen Shot 2014-09-14 at 04.51.33 e.h.

Skyrturnar hvítar en ekki snjakahvítar, og bindin blá, því ekki fer maður á Natófund með hálsbindi í einhverri kommúnistasjatteringu. Báðir með barmmerki, ég greini ekki merki Camerons en það virðist vera látlaust og úr góðmálmi, en Obama er með Stars and Stripes, bara svo að það sé á hreinu að hann er föðurlandsvinur eins og dagurinn er langur.

Allir jakkafatamenn láta svo taka myndir af sér á hægu tölti í íþróttagalla sem eiga að gefa til kynna heilbrigða sál í hraustum líkama sem fer út og joggar á hverjum morgni árið um kring kl. 6.30. Sömuleiðis myndir af sér á skyrtunni, jafnvel með uppbrettar ermar, bæði á skrifstofunni og svo við ýmis átaksverkefni sem gefa til kynna snerpu, dugnað og ósérhlífni. Svona lifum við í heimi staðlaðrar tjáningar, þröngrar hugsunar, innrætingar og takmarkaðs andlegs frelsis.

obamaromney

Á hinum endanum er svo annars konar stöðlun og einkennisbúningablæti einræðisríkja – sem í rauninni er ósköp svipað hinum lýðræðislegu klæðnaðarreglum. Svona eru mestu valdamenn í samfélögum okkar ófrjálsir varðandi framkomu sína og klæðaburð og persónulega og ærlega tjáningu. (Og það er ekki rétt að valdamesta kona heims, hún Angela Merkel, sé alltaf í sömu dragtinni – hún á helling af drögtum í mismunandi litum en allar með sama gamla góða sniðinu).

merkel

Rauð dragt.

Drapplituð dragt.

Drapplituð dragt.

 

Blá dragt.

Blá dragt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283