Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Vatnsdalurinn verður aldrei samur“

$
0
0

Hannah Kent var 17 ára skiptinemi í Skagafirði þegar hún heyrði söguna um Agnesi Magnúsdóttur. Hannah er stödd á Íslandi í tilefni útkomu bókar sinnar Náðarstund og verður sérlegur gestur á baðstofukvöldi Forlagsins á Café Rosenberg mánudagskvöldið 15. september þar sem hún les úr bókinni. Þetta er einstakt tækifæri til að hitta þessa ungu áströlsku skáldkonu sem tekst á við eitt alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í bók sinni. Viðburðurinn byrjar klukkan 20.00 og fyrstu 10 gestirnir fá bókina að gjöf. Silja Aðalsteinsdóttir stjórnar umræðum og Jón St. Kristjánsson ræðir um þýðinguna.

nadarstund

Í bók sinni Náðarstund dregur Hannah upp ótrúlega mynd af íslenskum veruleika, harðri lífsbaráttu, heitum tilfinningum og hörmulegum örlögum.

„Árið 1829 bíður kona aftöku sinnar á norðlenskum sveitabæ. Agnes Magnúsdóttir hefur verið dæmd til dauða ásamt tveimur ungmennum fyrir hrottalegt morð á elskhuga sínum og öðrum manni. Henni er komið fyrir hjá hreppstjóranum á meðan beðið er eftir dómi Hæstaréttar í Kaupmannahöfn. Heimilisfólkið óttast hana og forðast; enginn sýnir henni skilning nema ungur aðstoðarprestur sem hefur verið falið að búa hana undir dauðann. Í samtölum þeirra og upprifjunum Agnesar opinberast smátt og smátt harmsaga hennar, ást hennar á Natani Ketilssyni og aðdragandi skelfingarnæturinnar á Illugastöðum.“

 

Náðarstund er fyrsta skáldsaga Kent og hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Áströlsku bókmenntaverðlaunin. Hallgrímur Helgason hefur sagt um bókina:

„Ótrúleg bók sem ég sat límdur við. Ungur ástralskur höfundur dýfir sér í jökulkalt sagnadjúp okkar og kemur úr kafi með skáldsögu sem er svo trúverðug að manni finnst hún helst vera samtímalýsing frá 1830. Vatnsdalurinn verður aldrei samur.“ 

Hér er hægt að skoða myndband þar sem Hannah Kent ræðir bókina og efnistökin.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283