Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Bless, kvef!

$
0
0

Kokhraust grobbaði ég mig af því við stórfjölskylduna um síðustu helgi hvað það væri merkilegt að þau væru sífellt hóstandi með hor í nös en tækist aldrei að smita mig.

Ég hlýt að hafa gleymt að banka í borð og segja 7-9-13 eða að hið sígilda orðatiltæki „dramb er falli næst“ sé eitthvert alheimslögmál sem er að refsa mér því pestin náði mér loksins. Óþolandi hóstapest með tilheyrandi nefrennsli og sjálfsvorkunn.

Blessunarlega fæ ég sjaldan kvef og ég gleymi því alltaf á milli hversu glatað það er. Þá sjaldan það gerist rifja ég upp öll trixin í bókinni til að drepa ófögnuðinn, gleypi hvítlauk í massavís, dæli í mig C- og D-vítamíni, fer í gufu, tek engiferskot og svo mætti lengi telja.

GarlicBasket

Allt í kringum okkur eru sýklar sem geta gert okkur veik. Ónæmiskerfið er samt svo magnað að fæstir þessara sýkla komast í gegnum vopnabúr þess til að geta valdið nokkrum merkjanlegum óskunda. Öll verðum við þó lasin endrum og eins en við getum gert ýmislegt til að verja okkur og styrkja ónæmiskerfið.

Glass-of-Water

Það er margt sem getur veikt varnir okkar en verstu óvinir ónæmiskerfisins eru t.d. sykur, streita, sýkingar, mengun, hreyfingarleysi og næringarsnautt mataræði. Til að halda vörnum okkar sterkum eru ýmis ráð til sem gott er að rifja upp.

  • Borðaðu hreina, óunna fæðu, sérstaklega nóg af öllu grænmeti í sem flestum litum til að fá breiða flóru næringar- og andoxunarefna sem styrkja öll kerfi líkamans.
  • Borðaðu hvítlauk, engifer og turmerik vegna kröftugra sýkladrepandi og bólguhamlandi eiginleika þeirra.
  • Hreyfðu þig daglega og þurrburstaðu húðina – nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðrás og starfsemi sogæðakerfisins sem er ómissandi þáttur ónæmiskerfisins.
  • Hlúðu að þarmaflórunni – stór hluti ónæmiskerfisins býr í meltingarveginum svo heilbrigð þarmaflóra er dýrmæt vörn
  • Passaðu að fá nóg D-vítamín – sólarvítamínið sem svo marga skortir er ein af grundvallarforsendum þess að ónæmiskerfið starfi eðlilega
  • Jurtir eins og ólífulauf, sólhattur, hvönn og oregano-olía hafa löngum reynst vel
  • Grapefruit seed extract er náttúrulega sýkladrepandi
  • Lækningasveppir á borð við reishi, shiitake, chaga o.fl. hafa verið mikið í umræðunni og allt bendir til þess að þeir hafi öfluga ónæmisstyrkjandi eiginleika
  • Vertu viss um að þú þolir matinn þinn – vangreind fæðuóþol og ofnæmi geta veikt ónæmiskerfið
  • Takmarkaðu neyslu sykurs og annarra næringarsnauðra matvæla
  • Tóbaksneysla og óhófleg áfengisdrykkja eru ekki ráðleg

Til að losa um stíflur og fyrirbyggja ennis- og kinnholusýkingar er frábært ráð að sjóða vatn, hella í stóra skál, bæta við smá sjávarsalti og e.t.v. nokkrum dropum af ilmkjarnaolíum á borð við piparmyntu og eucalyptus. Ná því næst í stórt handklæði, beygja sig yfir skálina og loka gufuna inni með handklæðinu. Farðu eins nálægt og þú þolir og andaðu eins djúpt og lengi og þú getur. Snýttu þér svo duglega á eftir og hóstaðu upp öllu því slími sem þú getur. Girnilegt ekki satt?

netipot nefskolunarkanna.

netipot nefskolunarkanna.

Hrikalega þægilegt eftir á! Annað ráð er að nota nefskolunarbúnað á borð við Netipot sem margir sem eru gjarnir á að fá kinnholusýkingar nota með góðum árangri.

tea

Svo er auðvitað ómissandi að drekka nóg vatn, hvílast vel, drekka heitt jurtate og snæða seiðmagnaðar súpur fullar af hvítlauk og öllum frændum hans.

Síðast en ekki síst skaltu slaka á, finna leiðir til að takast á við streituna sem er óumflýjanlega alls staðar. Streita grefur undan góðri heilsu og lífshamingju, ekki gleyma því.

Ég er nokkuð bjartsýn á bata og held að kvefið hljóti að fara að játa sig sigrað. Ætla samt að fá mér eitt hvítlauksrif fyrir svefninn, já ég er pínulítið með hvítlauk á heilanum :)

Gangi ykkur vel að verjast haustpestunum og verið dugleg að kynna ykkur náttúrulegar leiðir til betri heilsu.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283