Ég þarf að viðurkenna dálítið. Ég er algjör „sökker“ fyrir grænmetisréttum – en er samt ekki grænmetisæta. Ó nei. Ég er mikil kjötkona og elska kjötið mitt rautt, blóðugt og rétt aðeins stökkt að utan. En það er eitthvað ögrandi og spennandi við grænmetisrétti. Litirnir. Bragðið. Útlitið. Þetta er allt svo spennandi. Himneskt bragð er galdrað fram með því að raða saman mismunandi tegundum af grænmeti og svo kannski bara nokkrum saltkornum bætt við. Töfrar!
Uppskriftin sem fylgir er grænmetisréttur með engri dýraafurð.
Suðrænt blómkál í kókos
1 rauðlaukur
1 laukur
Hvítlaukur eftir smekk (ég nota 4 rif)
1 rauður chilipipar
2–4 cm engifer
Þetta fallega hráefni er allt smátt saxað og sett í pott með olíu, sem að sjálfsögðu er hituð áður en laukarnir, chilipiparinn og engiferið er sett út í og mýkt. Krafturinn er settur út í ásamt smá vatni. Kryddið eftir smekk. Byrjið smátt og bætið við ef þið viljið hafa matinn sterkan.
Grænmetiskraftur, 1–2 teningar
1 msk. túrmerik (eða algjörlega eftir hentisemi)
1–2 msk. karrý (eitthvað bragðsterkt)
Grófur svartur pipar eftir smekk
Nokkrar chiliflögur
1–2 hausar blómkál
1 sæt kartafla, smátt söxuð
1 dós kjúklingabaunir
1 dós kókosmjólk (mega alveg vera tvær)
1–2 dl vatn
Nokkrar döðlur (eins og ein lúka)
Eitt búnt kóríander, smátt saxað
Saxið blómkálið í kvista, kartöflurnar í teninga og setjið í pottinn. Hellið kjúklingabaununum út í ásamt kókósmjólkinni, vatninu og döðlunum. Látið suðuna koma upp, lækkið þá hitann og látið malla áfram þar til kartöflur og blómkál eru búin að mýkjast. Smakkið til. Berið fram með góðum grjónum, söxuðu kóríander og mögulega kaldri sósu úr jógúrt eða skyri, með t.d. rifnum agúrkum í eða öðrum jurtum.
Það var nú ekki meira. Verði ykkur að góðu!
P.S Óþekkt súkkulaðið verður næst á dagskrá ☺