Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Besta hvítvín Chile 2014

$
0
0

Á föstudögum er fátt betra en að lyfta sér upp og fagna helgarfríinu með því að skála í góðu hvítvíni meðal vina. Vínið sem við mælum sérstaklega með að þessu sinni er frá hinu virta, margverðlaunaða húsi Cono Sur í Casablanca dalnum og var valið besta hvítvínið frá Chile 2014. 

RVA ESP SB 2014 meJOR VINO BLCO ING

Þetta vín er eingöngu gert úr Sauvignon Blanc þrúgum sem ræktaðar eru í steinefnaríkum leirkendum jarðvegi Casablanca dalsins. Það er ljósgult með grænum tónum. Í nefi býður það upp á ferskan ilm af grape, hvítum blómum og kryddjurtum. Í munni er það skarpt og í góðu jafnvægi með skemmtilegum steinefnatónum.

Vín þetta er sérstaklega gott með sjávarréttum, kjúklingi, krydduðum mat, ostum og jógúrt-eða sírtussósum. Gleðinni lýkur þó ekki þar því þetta vín kostar einungis 2.390 í vínbúðunum.

„Verð að segja að hér er framúrskarandi vín á fáránlega góðu verði.“

-Þorri Hreinsson, vínbloggari

Síle

Chile, Hversvegna hentar það vel til vínræktar?

Chile hentar að mörgu leiti einstaklega vel til víngerðar. Lega landsins, loftslag og náttúruleg einangrun frá sjúkdómum gera það að einu af bestu víngerðarsvæðum heims. Það er tvennt sem helst hefur áhrif á loftslag í Chile, og þar af leiðandi skilyrði til vínræktar. Annars vegar er það hið risastóra Kyrrahaf í vestri og sennilega enn hin ógurlegu Andersfjöll sem teygja sig niður eftir endilangri austurhlið landsins. Hið fyrrnefnda sér um að kæla niður annars heitt loftslag, og hið síðarnefnda tryggir svæðinu næga vætu sem rennur úr fjöllunum til sjávar eftir ævafornu kerfi áveituskurða sem Inkarnir grófu áður en Spánverjar numu þar land. Þetta er nauðsynlegt í annars þurru landslagi. 

Vínhéruð Chile eru að mestu leiti samþjöppuð rétt sunnan við höfuðborgina Santiago en þó er líka hægt að finna þau norðan við. Þar eru ræktaðar allar helstu „alþjóðlegu“ tegundir vínviðar sem þekkjast, eins og Sauvignon Blanc, Chardonnay, Cabernet Sauvignon, Merlot, Riesling og Gewurstraminer og fleiri. Tvær tegundir eru almennt taldar Chileskari en aðrar. Önnur er  Pais, sem hefur ekki náð alþjóðlegri útbreiðslu og hin er Carménére.

Svæði

 

Áður fyrr söfnuðu víngerðir saman þrúgum héðan og þaðan og gerðu úr þeim vín en nýlega hefur verið komið á skráningu svæða og þess vegna er nú alltaf vitað frá hvaða svæði nútíma vín frá Chile eru. Þessi svæði eru í raun dalir sem ár hafa grafið sér á leið sinni úr Andersfjöllum til sjávar. Aðalhéruð Chilee, sem skiptast svo í minni undirsvæði eru, frá norðri til suðurs:

Coquimbo 

Er eitt af nýrri víngerðarsvæðum Chile. Innan þess má finna Elqui Valley, Liamri Valley og Chapoa Valley. Líkt og nágranni þess í norðri Atacama, þar sem aðallega eru ræktuð vínber til átu, hefur svæðið aðallega verið þekkt fyrir það. Það breyttist fyrir skömmu þegar farið var að rækta vínvið hátt uppi í fjöllum (upp undir 2.000 metra) með aðdáunarverðum árangri. Þrúgur eins og Syrah virðast henta hvað best svæðinu þar sem er heitt og þurrt á daginn en svalt á nóttum vegna hæðar yfir sjávarmáli. Þar hefur einnig náðst góður árangur með dæmigerðar Bordaux þrúgur, eins og Cabernet Sauvignon og Merlot. Nær sjónum, þar sem gætir áhrifa hafsins, hafa menn á síðustu 5 árum verið að ná góðum árangri með hvítar þrúgur eins og Chardonnay.

Aconcagua 

Aconcagua

Svæði sem er í hlíðum hæsta fjalls Ameríku sem gnæfir þar yfir og snævi þakinn toppur þess ljær dalnum fegurð og er þar að auki nauðsynleg uppspretta vatns. Auk Aconcagua dalsins hátt uppi í hlíðum fjallsins má einnig finna hið þekkta hérað Casablanca. Í Casablanca dalnum var vínviði fyrst plantað á miðjum 9. áratug síðustu aldar og upp úr því hófst nýr kafli í vínrækt í Chile, þegar vín var ræktað í svölu loftslagi við sjávarsíðuna í fyrsta sinn. Þaðan komu skörp og fersk vín sem náðu athygli heimsins og leitin að nýjum svæðum til vínræktar hófst fyrir alvöru í Chile. Rauðar þrúgur hafa lengi verið ræktaðar í fjallshlíðunum og nýleg ræktun hvítvína við ströndina sýnir fram á góða möguleika til hvítvínsræktunnar úr ýmisskonar þrúgum. Innan Aconcagua er líka hinn þekkti San Antonio Valley, sem er sérstaklega frægur fyrir hvítvín úr Sauvignon Blanc og Chardonnay og rauðvín úr Pinot Noir.

Central Valley 

Central Valley er svæðið sem er næst höfuðborginni, Santiago, og er fjölbreyttasta og elsta víngerðarsvæði Chile. Það skiptist í undirsvæðin Rapel Cachapoal, Curicó, Maule og Maipo, (sem svo aftur skiptist í Alto Maipo Central Maipo og Costal Maipo). Svæðið teygir sig alla leið frá fjöllunum og niður að strönd og rennur Maipo áin þar í gegn. Heit eftirmiðdagssólin í Central Valley og kaldir vindar frá fjöllunum á nóttinni mynda kjöraðstæður fyrir mikil en tignarleg rauðvín, sérstaklega úr stjörnuþrúgum svæðisins Cabernet Sauvignon, því í grýttum og næringarríkum framburði Maipo árinnar vaxa rauðvínsþrúgur vel, allt frá fjalli til fjöru. Þarna er hlýtt án þess þó að vera heitt og það rignir hæfilega. Mitt á milli Andresfjallanna og Kyrrahafsins eru frekar lágir hólar og í hlíðum þeirra er ræktað hvítvín. Þó áhrif sjávar séu mikil á svæðinu vernda hólarnir vínekrurnar frá því að verða of mikið fyrir þeim.

Region del Sur

Suður af Central Valley er syðsta vínræktarsvæði Chile og syðst í því, syðsta vínræktarsvæði heimsins, Orsono Valley. Eins og nærri má geta þá er loftslag þar frekar svalt og blautt og víngerðarfólk á svæðinu hefur náð góðum árangri með vín úr þrúgum eins og Gewurstraminer, Riesling Chardonnay og Pinot Noir, og þá einna helst á svæði sem heitir Bio-Bio. Önnur svæði í suðrinu eru minna þekkt og heita Iata Valley og Malleco Valley.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283