Nýverið kom út barnabókin Freyja Dís sem vildi BARA dansa og dansa. Það er Forlagið sem gefur út.
Höfundurinn Birgitta Sif hefur áður notið mikillar velgengni fyrir fyrstu bók sína Ólíver sem, eins og Freyja Dís, kom fyrst út á ensku. Báðar hafa hlotið afar lofsamlega dóma hjá ýmsum dagblöðum erlendis, svo sem The New York Times.
Við fengum Júlíu Stefánsdóttur sjö ára til að lesa bókina og gefa henni umsögn og spurðum hana fyrst um hvað bókin væri.
Júlía: Bókin fjallar um stelpu, Freyju Dís, sem finnst rosalega gaman að dansa en hún dansar bara þegar fólk sér ekki til.
Afhverju gerir hún það?
Júlía: Hún er bara svo feimin. En svo gerist það að hún sér stúlku sem syngur bara fyrir framan alla og er ekkert feimin. Og þegar Freyja Dís var að fara að sofa gat hún ekki hætt að hugsa um stelpuna og hvað hún söng fallega. Svo var það að daginn eftir var hún ekkert feimin svo hún kenndi fuglunum að dansa og gamalli konu sem hún hitti úti í bæ. Svo spurði stúlkan sem söng svo fallega hvort Freyja Dís vildi kenna henni að dansa og þá gerði hún það auðvitað.
Hvernig fannst þér bókin?
Júlía: Skemmtileg. Hrikalega skemmtileg. Hún er ekki fyndin eða sorgleg bara skemmtileg.
Fannst þér vanta eitthvað í bókina?
Júlía: Nei.
Fyrir hvaða aldur passar bókin?
Júlía: sex, sjö og átta ára.
Heldurðu að foreldrar hefðu gaman af þessari bók?
Júlía: Ég er ekki viss, kannski smá.
Voru erfið orð í bókinni?
Júlía: Nei.
Ef þú ættir að gefa bókinni stjörnur, hvað fengi hún margar stjörnur?
Júlía: 10 stjörnur