GOOD/BYE er nýtt verk eftir Snædísi Lilju Ingadóttur dansara og leikkonu. Verkið fjallar um kveðjustundina. Kveðjustundin getur verið hversdagsleg, létt eða erfið, tilfinningin fer eftir tengslum þínum við þá sem þú kveður. Verkið er sýnt í Tjarnarbíói 23. september kl. 21:00. Aðeins ein sýning!
„Þegar ég kvaddi þig. Líkaminn. Fann fyrir brunanum. Innan frá. Í kviðnum. Hausinn. Hausinn að springa. Gat ekki andað. Gat ekki. Samt eðlileg. Reyndi samt að vera eðlileg. Líkaminn stjórnlaus. Blóðið steig upp eins og reykur frá bálinu í kviðnum. Þú faðmaðir mig. Fast. Faðmaðir. Loka augunum. Og við sjáumst ekki lengur.“
ATHUGIÐ: Aðeins ein sýning!
Sýningin er sett upp í samstarfi við dansverkstæðið.
Lengd: U.þ.b. 30 mínútur.
Sýningartími: 23. september kl. 21:00
Höfundur: Snædís Lilja Ingadóttir
Leikstjórn: Svandís Dóra Einarsdóttir
Tónlist: Ólafur Josephsson