Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Anna Rósa grasalæknir bjó til app sem er frábært!

$
0
0

Anna Rósa grasalæknir er búin að hanna app sem margir munu fagna því appið inniheldur greinargóðar upplýsingar um lækningamátt kryddjurta og vel yfir 100 uppskriftir eftir valinkunna kokka. Við spurðum Önnu út í tilurð appsins.

Anna Rósa

Anna Rósa

Mér fannst góð hugmynd að gera upplýsingar um krydd ennþá aðgengilegri almenningi með því að búa til app og enn betri hugmynd að hafa fullt af uppskriftum því hver vill ekki hafa með sér uppskriftarbók út í búð þegar á að ákveða hvað er í matinn? Síðan er líka stefnan sú að hafa appið lifandi með því að bæta reglulega við uppskriftum.

Var ekkert flókið að búa til app? Ertu svona mikill tækninörd?

Ég bjó til appið ein og óstudd, reyndar er forsagan sú að ég vildi hafa appið ókeypis og því ekki kosta miklu til í beinhörðum peningum við gerð þess. Ég tók mig því til og gúgglaði hvernig ætti að gera app og komst að því að ég gat bara vel gert það sjálf án mikils tilkostnaðar. Síðan var ég svo heppin að fá til samstarfs mikla listakokka sem leggja til uppskriftir, en þau eru Sveinn Kjartansson hjá AALTO Bistro, Sigurveig Káradóttir hjá Matarkistunni og Helga Mogensen. Öll eru þau þekkt fyrir sérlega góðan mat sem inniheldur allskonar krydd.

blodberg-slider

Segðu okkur aðeins af áhuga þínum á lækningamætti kryddjurta?

Ég hef alltaf haft mikla trú á því að í kryddjurtum felist forvörn gegn ýmsum kvillum. Allar kryddjurtir eru jafnframt lækningajurtir en þótt jurtir til lækninga séu notaðar í mun stærri skömmtum en tíðkast í mat, þá getur verið góð forvörn gegn hverskyns sjúkdómum að nýta litla skammta af lækningajurtum í mat.

Hvernig nýtist appið manni best?

Uppskriftirnar eru flokkaðar í súpur, aðalrétti, meðlæti osfr. en einnig má skoða hvert krydd fyrir sig t.d. túrmerik og sjá þá samantekt á öllum uppskriftum sem innihalda túrmerik. Íslenskt grænmeti er einnig flokkað eftir hverri tegund fyrir sig t.d. má sjá undir blómkáli allar uppskriftir sem innihalda blómkál. Neðst í flokkunum er einnig samantekt á uppskriftum eftir hvern höfund fyrir sig og að auki samantekt á lækningamættti kryddanna. Að auki innheldur appið myndaalbúm yfir algengar íslenskar lækningajurtir sem nýtist þeim sem langar að þekkja þær og tína.

Appið er ókeypis og má nálgast það með því að slá inn: Krydd og uppskriftir í App Store og Play Store fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283