Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Karlmenn, tilfinningar og sparakstur – Nýtt leikrit

$
0
0

Föstudaginn 26. september kl 20.00 verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu verkið Gaukar eftir Huldar Breiðfjörð í leikstjórn Jón Páls Eyjólfssonar. Huldar þreytir hér frumraun sína í leikhúsi. Huldar Breiðfjörð sló í gegn með bók sinni Góðir Íslendingar. Hann er þekktur fyrir næma sýn á mannfólkið og sér í lagi Íslendinga. Leikarar í sýningunni eru Jóhann Sigurðsson og Hilmar Guðjónsson.

20140919-_D3A3746

Í tilkynningu frá leikhúsinu segir um verkið:

„Tómas hittir Gunnlaug á hótelherbergi á landsbyggðinni að vetri til. Gunnlaugur sem er eldri hefur komið sér þar fyrir ásamt gæludýri sem hann hyggst gefa frá sér. Tómas hefur mikinn áhuga á gæludýrinu og er kominn úr borginni til að skoða það. Gunnlaugi er umhugað um að finna góðan eiganda og yfirheyrir Tómas um fjölskylduhagi og reynslu af dýrahaldi. Þegar Gunnlaugur er loks að verða sannfærður um ágæti Tómasar kemur upp ákveðið vandamál sem flestir myndu kalla smáatriði en er þó nógu stórt til að setja fund mannanna í uppnám.“

20140919-_D3A3823


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283