Þegar kemur að því að nota kókosolíu til að létta sig þá er það ekki enn einn vonlausi megrunarkúrinn. Það eru nefnilega líffræðilegar ástæður fyrir því af hverju kókosolía brennir fitu.
Það fyrsta sem ber að átta sig á er að ekki eru allar mettaðar fitur eins og þær eru alls ekki allar óhollar fyrir manneskjuna. Það eru aðeins langar keðjur af mettuðum fitusýrum sem eru óhollar en ekki þær sem eru í meðallengd eða stuttar. Og mundu að fita er alls ekki sama og fitusýrur.
Að nota kókosolíu til að grennast er hollur kostur og fullt af jákvæðri virkni á heilastarfsemi, virkni vöðva (þar með talinn hjartavöðvann), fyrir líkamann að lækna sig, orkugefandi og margt fleira.
Kókosolía hækkar ekki blóðsykurinn hratt og líkaminn notar hana strax og breytir í orku. Hún er ekki sett í geymslu í líkamanum þar sem hægt er að breyta henni í fitu. Af þeim ástæðum þá hraðar kókosolían á efnaskiptunum og hún barf meira að segja ekki á neinum meltingarensímum að halda til að brjóta hana niður.
Samkvæmt sérfræðingum þá helst hraði efnaskipta meiri í allt að 24 tíma eftir að olíunnar er neytt. Þannig veitir hún þér orku og brennir fitu allan daginn.
Kókosolía og skjaldkirtillinn
Ef skjaldkirtillinn er ekki að virka sem skyldi og margir þjást af vanvirkni í skjaldkirtli án þess að vita af því þá er erfitt að léttast, alveg sama hversu hollt þú borðar og fáar hitaeiningar þú neytir. Þú getur hoppað og skoppað í ræktinni alla daga og vigtin haggast ekki.
Einkenni vanvirkni í skjaldkirtli eru:
• Þreyta og orkuleysi
• Þyngdaraukning
• Kaldar hendur og fætur
• Lágur líkamshiti
• Þunglyndi og kvíði
• Svefntruflanir
• Þurr húð og lélegar neglur
• Hægðatregða
• Ofnæmi og astmi
• Hárlos
Ómettaðar olíur hindra meltingu próteina í maganum sem getur leitt til þess að við erum vannærð jafnvel þótt við borðum hollan mat til að reyna að létta okkur. Breytingar á hormónum af völdum ómettaðrar fitu geta skemmt virkni skjaldkirtilsins. Einnig geta þær hindrað seytingu á skjaldkirtilshormónum.
Hreinsaðar ómettaðar grænmetisolíur draga úr virkni skjaldkirtilsins og geta valdið þyngdaraukningu. Kókosolía er ekki ómettuð og hefur ekki neikvæð áhrif á skjaldkirtilinn. Þvert á móti þá hjálpar kókosolía skjaldkirtlinum til að starfa eðlilega og að halda fólki í kjörþyngd. Kókosolía örvar einnig efnaskiptin og stuðlar þannig að þyngdarmissi.
Árið 2009 var framkvæmd rannsókn á konum með kviðfitu og áhrif kókosolíunnar. Fjörutíu konur á aldrinum 20–40 ára sem voru með mittismál meira en 88 cm fengu daglega 30 ml af kókosolíu og aðrar fengu 30 ml af sojaolíu. Rannsóknin stóð yfir í 12 vikur og eftir þann tíma voru það aðeins konurnar sem höfðu fengið kókosolíuna sem höfðu minnkað í mittismáli. Sá hópur sýndi engar breytingar á kólesterólmagni en hópurinn sem fékk sojaolíuna var með lækkun á HDL (góða kólesterólið) gildum og hækkun á LDL (vonda kólesterólið) gildi og LDL:HDL hlutfallinu. Niðurstöður rannsóknarmanna voru að kókosolía hækkar ekki kólesteról og minnkar kviðfitu.
Auðveldasta leiðin til að byrja inntöku á kókosolíu er að taka hana hreinlega með skeið. Byrjaðu á litlum skammti og smá auktu skammtinn þar til líkami þinn venst olíunni í 3 og 1/2 msk. á dag.
Þú getur notað kókosolíu í alla matargerð og skipt þannig út olíunni sem þú ert að nota í dag. Bæði er hægt að fá hana bragðlausa og með kókosbragði, hvort sem þér líkar betur. Athugaðu bara að kaupa lífræna kaldpressaða kókosolíu.
Gott er að nota kókosolíu í kaffi í stað mjólkur og svo eru sumir sem hreinlega taka hana inn hreina og óblandaða eins og lýsi.