Á næstunni kemur út bókin Afríka – ást við aðra sýn, eftir Stefán Jón Hafstein.
Bókin er safn greina og mynda frá ólíkum stöðum og með merkilegu fólki sem Stefán Jón hefur heimsótt á ferðum sínum og við störf í álfunni heitu.
,,Mig langaði til að koma því til skila heim til Íslands sem ég upplifði og reyndi í Afríku“ segir Stefán Jón. Þetta er bók um fólk, fyrir fólk“ segir höfundur sem gefur hana út sjálfur. „Hún passar ekki á neinn sérstakan markað og fellur ekki undir neina sérstaka skilgreiningu, stendur bara á eigin forsendum sem persónuleg frásögn þar sem ætlunin er að bjóða lesendum í Afríkuferð og auka skilning sinn á litríku mannlífi við ólíkar aðstæður“.
Sagt er frá ólíkum kynþáttum í jaðarbyggðum, lífsbaráttunni lýst þar sem fólk þarf að gera sér mikið úr litlu og ofinn þráður úr ýmsum áttum með myndum og texta sem saman varpa ljósi á töfra Afríku, hve óvægin hún er og viðnámsþróttur fólksins mikill. Á milli kafla er skotið dagbókarbrotum höfundar sem færa lesanda enn nær vettvangi.
Stefán Jón gefur bókina út sjálfur eins og áður sagði og á eigin kostnað en áhugasömum lesendum býðst að leggja til við að greiða prentkostnað og eignast eintak um leið á góðum kjörum. Áheitum er nú safnað á Karolinafund.com. og við hvetjum ykkur til að styrkja þetta spennandi verkefni Stefáns Jóns.
Hér má sjá myndbandskynningu á bókinni.