Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Af Kristsdegi

Anton Helgi Jónsson skáld skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook síðu sinni og gaf okkur leyfi til að deila með lesendum Kvennablaðsins.

Biðjum fyrir þeim sem hafa mátt þola ofbeldi, andlegt eða líkamlegt, af hálfu maka eða annarra. Biðjum einnig fyrir börnum sem níðst er á kynferðislega eða hefur verið níðst á kynferðislega innan veggja heimilis, á opinberum stofnunum eða í starfi hjá trúfélögum. Biðjum fyrir því að þau öðlist styrk til að segja frá og þeir sem heyri um brotin megni að hjálpa.

Þegar ég las bænarefnin sem lágu fyrir á Kristsdeginum fannst mér merkilegast að sjá yfir hverju var þagað.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Screen Shot 2014-09-28 at 12.34.23 e.h.

Það var beðið fyrir útgerðarfyrirtækjum og kvótakerfinu og það var beðið fyrir stjórnmálamönnum og þess óskað að Guð stöðvaði neikvætt umtal um þá. En það var hvergi minnst á ofbeldi gegn konum eða kynferðislega misnotkun á börnum, það var ekkert bænarefni í stíl við inngangsorðin hjá mér.

Ég vona heitt og innilega að öllum sem tóku þátt í Kristsdeginum eigi eftir að heilsast vel í framtíðinni og að forgangsröðunin í bænarefnum verði aldrei talin dæmigerð fyrir kristilegt umburðarlyndi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283