Vín vikunnar er í góðu jafnvægi og nýjaheimslegt, hefur persónuleika og elegans.
Þar að auki er það þokkafullt, einfalt og aðgengilegt.
Ekki nóg með það, heldur er það líka fáanlegt í Vínbúðunum á einstaklega góðu verði!
Vín vikunnar er hið unga og frískandi Pinot Noir frá Cono Sur.
Eftir því sem vín úr Pinot Noir vaxa í vinsældum í heiminum verður víngerðarfólk í Chile bara betra og betra í því að fást við þessa viðkvæmu og duttlungarfullu þrúgu, sérstaklega þegar kemur að vínum á viðráðanlegu verði. Að búa til gott vín úr Pinot Noir er ekki auðvelt því þrúgurnar eru viðkvæmar og þola illa óvænt veðrabrigði eða hnjask.
Mörg af dýrustu (og af mörgum talin bestu) rauðvínum heimsins koma frá Búrgundarhéraði í Frakklandi og eru gerð úr Pinot Noir. Lengi vel voru það einu vínin sem fáanleg voru úr þeirri þrúgu. Víngerðarfólk á kaldari svæðum hefur þó verið að ná tökum á henni smám saman og hafa þá svæði eins Russian River í Californíu, Nýja Sjáland og Norður-Ítalía (þar sem hún heitir reyndar Pinot Nero) gjarnan verið nefnd til sögunnar. Núna hefur Chile einnig slegist í hópinn og það með látum.
Cono Sur-víngerðin var búin til í kringum fyrstu Pinot Noir-ekrur í Chile og var fyrsta húsið til að framleiða Pinot Noir til útflutnings. Það var árið 1999 sem aðalvíngerðarmaður Cono Sur, Adolfo Hurtado, hóf „pinot Noir verkefnið sitt“ með það fyrir augum að búa til besta Pinot Noir í Chile. Einstakt og svipmikið með keim af uppruna sínum, þó það væri gert með sömu aðferð og notuð er í Búrgúnd.
Pinot Noir-þrúgurnar hjá Cono Sur eru handtíndar og eftir að hafa farið í gegnum færiband, þar sem það sem hið ónothæfa er fjarlægt, er stilkurinn tekinn í burt og þess gætt að berin springi ekki. Berin eru þá sett í opna tanka þar sem fyrsta gerjun fer fram við lágt hitastig. Síðan eru þrúgurnar kramdar og gerjun kláruð. Eftir það eru vínin sett á franskar eikartunnur og geymd í u.þ.b. 14 mánuði.
Vín vikunnar er Pinot Noir af bestu sort frá Cono Sur og fæst í Vínbúðinni fyrir litlar 1.950 krónur. Þetta vín er fjólurautt að lit með ríkum ávaxtatónum af kirsuberjum, jarðarberjum og plómum – sannkallað ávaxtapartí sem ýtt er undir með mildum reyktónum. Sætir ávaxtatónar og fínleg tannín gefa því góða byggingu í munni. Vínið er í góðu jafnvægi og nýjaheimslegt, er sérstakt og fágað. Þar að auki er það þokkafullt, einfalt og aðgengilegt.