Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er í dag 10. október. Af því tilefni er viðburðarrík dagskrá alla helgina og fram á miðvikudag í næstu viku. Geðhjálp fagnar einnig 35 ára afmæli um þessar mundir og því ærið tilefni til þess að fagna þessum áfanga með þeim.
Geðheilbrigðismál hafa verið í brennidepli hér á landi um langt skeið og þó svo að nokkur árangur hafi náðst eigum enn nokkuð í land til þess að málefnum geðfatlaðra sé gert nægilega hátt undir höfði.
Réttindabarátta, viðunandi úrræði og fordómar eru meðal baráttukefla samtaka á borð við Geðhjálp sem þarfnast þinnar hjálpar til þess að lyfta megi Grettistaki í þessum málum.
Á vefsíðunni 10okt.com segir:
“Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldin víðsvegar í heiminum þann 10 október ár hvert. Vefsíðan 10okt.com er samstarfsverkefni þeirra aðila sem koma að undirbúningi Alþjóða geðheilbrigðisdagsins sem haldinn er 10. október ár hvert. Honum var fyrst hrundið af stað 1992 af Alþjóðasamtökum um geðheilsu (World Federation for Mental Health) og var markmiðið þá, eins og nú, að vekja athygli á geðheilbrigðismálum, fræða almenning um geðrækt og geðsjúkdóma og sporna gegn fordómum í garð geðsjúkra. Geðheilbrigðisdagurinn á að vera dagur allra. Það var árið 1995 sem heilbrigðismálaráðherra, frú Ingibjörg Pálmadóttir, ákvað að þessi dagur skuli vera sérstaklega helgaður geðheilbrigðismálum. Ákvörðun ráðherra var mjög mikilvæg fyrir geðsjúka og aðstandendur þeirra til þess að vekja athygli á vanda þeirra og nauðsyn þess að úr verði bætt. Hinn 10. október 1996 var alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur haldinn hátíðlegur á Íslandi í fyrsta sinn. Skrifstofa félagsins hélt utan um skipulagningu dagsins ásamt forstöðukonu Vinjar og bar mestan kostnað af aðgerðunum. Dagurinn varð sögulegur þar sem geðsjúkir tóku í fyrsta sinn málin í sínar eigin hendur með aðstoð samtaka sinna og komu fram opinberlega í hátíðargöngu frá heilbrigðisráðuneytinu niður Laugaveg að ráðhúsinu þar sem málþing var haldið og var mjög fjölsótt. Verndari dagsins og ræðumaður var Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, þáverandi forsetafrú, sem lét þetta vera sitt fyrsta opinbera embættisverk og var það félagsmönnum mikill heiður”.
Við hvetjum alla til þess að kynna sér dagskrána og taka virkan þátt í þessari vakningu saman því öll þekkjum við einhvern sem glímir við geðsjúkdóm af einhverju tagi. Landið er lítið og því er nauðsynlegt að við sýnum stuðning í verki.