Nú fer hver að verða síðastur að sjá hina fjörugu og skemmtilegu fjölskyldusýningu Trúðleik, en síðasta sýning verður núna á sunnudaginn 12. október, kl. 14:00 í Tjarnarbíói.
Í sýningunni fylgjumst við með trúðavinunum Skúla og Spæla, sem velta fyrir sér hlutverkum sínum sem trúðar og láta reyna á ýmsar nýjar kúnstir. Sýningin hæfir börnum niður í 4 eða 5 ára, en hún er einnig fyrir eldri áhorfendur, þar sem umfjöllunarefni trúðanna felur í sér ýmsar skírskotanir sem þeir eldri geta velt fyrir sér.
Trúðleikur er sprellfjörugur og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla fjölskylduna.
Hér er stikla úr sýningunni: