Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nóbelsverðlauna-niðurjöfnunarnefndin

$
0
0

Hér er listi yfir 10 síðustu Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum. Það er greinilegt að Sænska akademían telur sig þurfa að taka tillit til margra hluta alveg burtséð frá bókmenntalegum gæðum.

Sænska akademían sem tekur sig óendanlega hátíðlega þarf að stunda einhvers konar pólitíska byggðastefnu, gefa öllum fagurbókmenntahöfundum séns án tillits til hvort þeir skrifa skáldsögur, ljóð, smásögur eða leikrit – án þess að sökkva svo djúpt að fara að verðlauna myndasöguhöfunda, barnabókahöfunda og alskonar skríl. Heimsálfurnar þurfa að fá sitt, svo og stóru tungumálin og svo verður að fleygja bita inn í afskekktar byggðir í hnattrænum afdölum.

Og nú spái ég því að ekki muni langur tími líða – innan við 5 ár – þar til Nóbelsverðlaunaniðurjöfnunarnefndin hættir að dissa Bandaríki Norður-Ameríku og U.S. of A. fái sinn höfund og þar er Philip Roth fremstur í biðröðinni og mun örugglega fá verðlaunin takist honum að tóra fram á tíræðisaldur.

Jón Kalman gæti svo komið innan 20 ára sem fullkominn og velskrifandi fulltrúi afskekkts smáríkis og tungumáls sem er öllum heiminum óskiljanlegt.

Ef Sænska akademían væri íslensk gengi hún eflaust undir nafninu NÓBELSVERÐLAUNANIÐURJÖFNUNARNEFNDIN

2014 Evrópa – Frakkland – Patrick Modiano
2013 Norður-Ameríka – Kanada – Alice Munro smásögur
2012 Asía – Kína – Mo Yan
2011 Evrópa – Svíþjóð – Tomas Tranströmer ljóð
2010 Suður-Ameríka – Perú (Spánn) – Mario Vargas Llosa
2009 Evrópa – Rúmenía/Þýskaland – Herta Müller
2008 Evrópa/Afríka – Frakkland/Máritíus – Jean-Marie Gustave Le Clézio
2007 Evrópa – England - Doris Lessing
2006 Asía/Evrópa – Tyrkland – Orhan Pamuk
2005 Evrópa – England – Harold Pinter leikrit


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283