Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Flottur hringtrefill með köðlum – uppskrift

$
0
0

Hér kemur uppskrift að fallegum hringtrefli með köðlum. Þýðing er eftir Guðrúnu Hannele.

Guðrún Hannele.

Guðrún Hannele.

Hönnun trefils
Debbie Bliss

Mál
Um 23cm á breidd og 170cm á lengd.

Efni og áhöld
6 x 50g af Debbie Bliss Paloma (litur 17 á mynd)
10mm hringprjónn (60-80cm)
Kaðlaprjónn
Prjónfesta
12L og 18 umf = 10cm x 10cm í sléttprjóni með 10mm prjónum.

ORÐALYKLAR
L = lykkja, lykkjur
umf = umferð
B = brugðið/brugðnar
S = slétt/sléttar
s = saman
z = snúnar / prjóna aftan frá
Útaukningar
auk: = útaukning
1Sz = aukið út með því að prjóna þverbandið á milli L snúið sama hvoru megin.
Úrtökur
úrt: = úrtaka
2Ss = 2 lykkjur sléttar saman, halla til hægri.
Kaðlar
K6/6F = Kaðall – hallar til vinstri. Setjið næstu 6L á kaðlaprjón og geymið fyrir framan, prjónið næstu 6L slétt og síðan L af kaðlaprjóninum slétt.

hringtrefill

HRINGTREFILLINN

Fitjið upp 30L með 10mm prjónum.
Prjónið kaðlamynstur á eftirfarandi hátt:

1. umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, 10S, [2B, 2B] tvisvar, 2B.
2. umf: Allar L brugðnar.
3. – 6. umf: Endurtakið síðustu 2 umferðir tvisvar í viðbót.
7. umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, setjið næstu 6L á kaðlaprjón og geymið fyrir framan, [1S, auk:1Sz] tvisvar, 2S, þá 6S af kaðlaprjóni, [2B, 2S] tvisvar, 2B = 32L.
8. umf: Allar L brugðnar.
9. umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, 12S, [2B, 2S] tvisvar, 2B.
10. umf: Allar L brugðnar.
11. – 20. umf: Endurtakið 9. umf og 10. umf 5 sinnum.
21. umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, K6/6F, [2B, 2S] tvisvar, 2B.
22. umf: Allar L brugðnar.
Endurtakið 9. – 22. umf þar til trefillinn mælist um 170cm langur, endið á 20. umf.
Næsta umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, setjið næstu 6L á kaðlaprjón og setjið fyrir framan, [úrt: 2Ss] tvisvar, 2S, þá 6S af kaðlaprjóni, [2B, 2S] tvisvar, 2B = 30L.
Næsta umf: Allar L brugðnar.
Næsta umf: 2B, [2S, 2B] tvisvar, 10S, [2B, 2S] tvisvar, 2B.
Næsta umf: Allar L bruðgnar.
Fellið af sléttar L slétt og brugðnar L brugðnar.

Saumið saman uppfit og affellingu til að mynda hringtrefil. Ef vill er einnig hægt að hafa þetta sem venjulegan trefil og sleppa því að sauma saman endana.
Garnið fæst í Storkinum.

Guðrún Hannele er textílkennari og menntunarfræðingur og hefur aflað sér þekkingar á kennslufræði textílgreina í háskólum hér á landi, í Finnlandi og í Kanada. Hún hefur kennt textílmennt á ýmsum skólastigum um árabil. En nú um stundir á prjón hug hennar allan enda hefur hún rekið STORKINN, elstu garnverslun landsins, í næstum sjö ár.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283