Reykjavík Comedy Festival 24. – 26. október
Í fyrsta skipti á Íslandi er nú haldin alþjóðleg grínhátíð í Hörpu á vegum Senu, í samstarfi við Europe Comedy Fest. Sambærilegar hátíðir verða haldnar um svipað leyti í Svíþjóð, Noregi, Belgíu og fleiri löndum.
Af þeim 14 grínistum sem verða á hátíðinni eru þrjár konur, Harriet Kemsley, Kerry Godliman og Saga Garðarsdóttir.
Harriet er menntuð leikkona en hóf uppistandsferil sinn árið 2011. Hún kemur fram reglulega fram með spunahópnum The Pilots og hefur nýverið lokið tökum kvikmyndinni Bonobo.
Hún hefur unnið til fjölda verðlauna og þar með talin:
Funny’s Funny Winner 2011
Up The Creek One To Watch Winner 2011
Bath New Act of the Year Winner 2012
Brighton New Act of the Year Winner 2012
New Comedian of the Year Finalist 2012
Laughing Horse Finalist 2012
Leicester Mercury Nominee 2014
Kerry Godliman hefur verið uppistandari í fjölda ára og þykir ein af þeim bestu í bransanum; hún er þekktust fyrir leik sinn sem Hannah í þáttaröðinni um Derek, sem enginn annar en Ricky Gervais skrifaði og leikstýrði.
Umsagnir um Kerry:
“Godliman fer á kostum þegar hún tekur fyrir tískubransann, nútímakynlíf og hin ýmsu rafmagnstæki…ég skemmti mér konunlega!”
- The Times
“Kerry var það besta við Derek þættina og af þessari sýningu að dæma er augljóst að hún á eftir að slá í gegn á næstunni…hún hefur einstaklega næmt auga fyrir fáránleika lífsins, sérsaklega þegar viðkemur foreldrahlutverknu og vafasamar auglýsingar…hún talar af svo mikilli innlifun og eldmóð að það er smitandi…óstöðvandi og endalaust fyndin!”
- Beyond the Joke
“Þegar Kerry fór á flug lá salurinn í krampahlátri…hún gerir sér mat úr Facebook, skítastörfum, krefjandi börnum og verulega vafasömum auglýsingum á frumlegan og eftirminnilegan hátt…ég hló og hló og sé hana vonandi aftur sem fyrst!”
- Chortle
Sögu Garðarsdóttur er óþarfi að kynna fyrir Íslendingum. Hún hefur svo sannarlega sannað sig sem leikkona og uppistandari sl ár þó svo hún hafi útskrifast árið 2012 og þykir ein fyndnasta kona Íslands.
Saga hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Steindinn okkar og Hæ Gosi. Hún hefur einnig leikið í og skrifað með öðrum handrit að áramótaskaupi Ríkisútvarpsins 2013.
Saga hefur troðið víða upp sem uppistandari og verið með grínþætti í útvarpi og sjónvarpi. Um uppistandsfélag stelpna, var gerð heimildarmynd árið 2010. Saga hefur jafnframt lesið upp í útvarpi og inn á heimildarmyndir og verið fastur penni í Fréttablaðinu.
Hér má panta miða á Reykjavík Comedy Festival!