Það var með töluverðri eftirvæntingu sem við dembdum okkur í að skoða þá vöruflokka sem bera almenn vörugjöld. Ríkisstjórnin með fjármálaráðherra í broddi fylkingar hefur boðað afnám vörugjalda „til hagsbóta fyrir heimilin“ og því er það skylda almennings að kunna skil á því í hverju hagsbótin liggur.
Í fjárlagafrumvarpi segir:
„Almenn vörugjöld verða afnumin en þau leggjast í dag á sykruð matvæli og drykkjarvörur (kr. á kg. eða lítra), byggingavörur (15%), varahluti í bíla (15%), stærri heimilistæki svo sem ísskápa og þvottavélar (20%) auk annarra raftækja eins og sjónvörp og hljómflutningstæki (25%). Niðurfelling almennra vörugjalda er mjög til einföldunar, felur í sér skattalækkun fyrir heimilin og tímabært afnám úreltrar neyslustýringar. Með þessu mun verð á ýmsum algengum neysluvörum lækka verulega með jákvæðum áhrifum á verðlag.“
Manni finnst bara eins og jólin séu að koma. Úrelt neyslustýring heyrir sögunni til! Nú verður aldeilis hægt að gera vel við sig og sína.
Efst á lista yfir vörur sem bera almennt vörugjald eru allar vörur með tollskrárnúmer sem hefst á rununni 0402 en það er mjólk og rjómi, kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætuefni.
Eitthvað segir okkur að þessir vöruflokkar séu innflutningsvara Mjólkursamsölunnar sem kemur ekki á óvart því þess hefur vandlega verið gætt að standa á bak við einokun á sem flestum sviðum og tryggja að vörur samsölunnar með viðbættum sykri og umbreyttri mysu séu almenningi aðgengilegar umfram allt.
Afsláttur af þessum vöruflokkum með álögðum nýja 5% matarskattinum leiðir af sér að starfsfólk matvöruverslana mun vafalítið þurfa að leggja nótt við nýtan dag til að breyta vöruverðum um þær krónur og aura sem varan hugsanlega lækkar í verði. Hver greiðir yfirvinnulaunakostnað vegna þessara vöruverðmiðabreytinga er ekki gott að segja.
Hvað er nú hér! Þetta er nú aldeilis fínt. Vörugjöldin munu lækka af eftirtöldum vöruflokkum líka en þar eru vörur svo sem púðursykur, sallasykur, vatnsfrír laktósi, hlynsýróp, kemískt hreinn laktósi (hjúkk að hann er kemískt hreinn), möndlumassi, sykraður lakkrís og karamellur.
Lýðheilsumarkmið forsætisráðherra eru augljós hér, sætindi og meiri sætindi efla dug og þrótt og tannlæknar fá nóg að gera þó almenningur eigi æ erfiðara með að sinna lágmarkstannheilsu barna sinna. Einnig má ímynda sér að þetta sé nokkur kjarabót fyrir sælgætisframleiðendur og bakara og væntanlega mun lækkun vörugjaldsins fela í sér nokkurra aura afslátt á síríuslengjum og vínarbrauðum – ef einhver nennir að standa í að breyta verðinu í búðinni.
Við getum hlakkað til að reiða fram rétti úr eftirfarandi vöruflokkum:
Fyllt súkkulaði í plötum eða stöngum, íssósa, búðingar, hjúpaðar rúsínur, karamellur og hlaup svo ekki sé minnst á páskaeggin sem eru náttúrlega máltíð í sjálfu sér. Full hús matar.
Krakkar! Það er aftur Vilkosúpa í matinn í kvöld!
Þegar hér var komið sögu lyftist aldeilis brúnin, því enda þótt fæst af eftirtöldu sé alla jafna notað til matargerðar í heimahúsum og geti síst kallast staðgóðar vörur til manneldis þá eru þarna vörur neðst eins og paprika, spergill og sítrusávextir.
Það voru því viss vonbrigði að sjá að allir vöruflokkar sem bera upphafsrununa 2006 eru samkvæmt tollskrá: matjurtir, ávextir, hnetur, ávaxtahýði og aðrir plöntuhlutar, varið skemmdum með sykri (gegndreypt, gljásykrað eða kristallað).
Kex- og kökuframleiðendur og eigendur Vilkograuta geta hinsvegar tekið gleði sína og fagnað lægra vörugjaldi.
2202 vörunúmerið dularfulla sem við skulum skoða næst nær yfir eftirfarandi: Vatn, þar með talið ölkelduvatn og loftblandað vatn, með viðbættum sykri eða öðru sætuefni eða bragðbætt, og aðrar óáfengar drykkjarvörur, þó ekki ávaxtasafar eða matjurtasafar í nr. 2009. Djús og gosframleiðendur landsins hljóta að vera gargandi ánægðir með lækkun vörugjalda á þessum flokkum og enn færumst við nær lýðheilsumarkmiðum forsætisráðherra.
Þeir sem eru að byggja og breyta geta séð fram á bjartari tíma því byggingariðnaðurinn nýtur góðs af lækkun vörugjalds, sbr. eftirfarandi vöruflokka:
Gólfefni, vegg- og loftklæðningar, baðker, salernislok og plasthylki fyrir handþurrkupappír munu lækka í innkaupum fyrir BYGG, Byko og Bauhaus og sannarlega skila sér til þeirra sem t.d. eru á leigumarkaðnum eða öryrkja sem eru í sífellu að skipta út plasthylkjum fyrir handþurrkupappír.
Augljóslega munu hótelbyggjendur og verktakar sem kaupa íbúðir í kippum af Íbúðalánasjóði kætast, og vísast að þetta skili sér í ódýrara húsnæðis- og leiguverði til almennings. Nema það verði eftir í vasa eigendanna?
Stærri heimilistæki eins og ísskápar, frystiskápar, uppþvottavélar, þvottavélar og þurrkarar megi gjarnan við því að lækka í verði og samkvæmt þessum lista stendur það til. Það er svo aftur önnur saga að lækkun vörugjalds af þurrkara af ódýrustu gerð, fyrir þá sem hafa ráð á nýjum þurrkara yfirleitt, getur aldrei orðið veruleg búbót.
Öðru máli gegnir um þá sem geta leyft sér að kaupa 350.000 króna Miele þurrkara með PerfectDry, FragranceDos og gufusléttun, en þá getur afslátturinn alveg dugað fyrir 3 sæmilegum koníaksflöskum.
Við leituðum dyrum og dyngjum að vöruflokksnúmeri sem átti við lítil rafmagnstæki eins og vöfflujárn, kaffivélar og brauðristar, þið vitið þetta dót sem maður sem leigjandi sem er að hefja búskap í fyrsta sinn leyfir sér að kaupa, og fundum reyndar eftir langa leit, enda lítt verseraðar í tollskýrslulestri. 7000 króna brauðrist gæti lækkað um næstum 500 krónur! Hátíð í bæ!
Þegar hér var komið sögu var húmorinn á vissu undanhaldi, þar til að við fundum eftirfarandi vöruflokka sem vörugjald á að lækka á: heimabíó, handfrjáls búnaður fyrir síma og tæki sem stýrt er með mynt, bankaseðlum, bankakortum, spilapeningum eða öðrum greiðslumiðlum. Það er sennilega góð hugmynd að flytja inn spilakassa og hraðbanka.
Til verulegra hagsbóta fyrir heimilin? Jesús, hvað þetta er eitthvað leiðinlegt og sorglegt, krakkar mínir, en látum ekki hugfallast því tími nuddklefanna, kveikjuraflagnasettanna, flúorskinsljósanna og driföxlanna er kominn!
Kjarabót heimilanna felst í lægri tollum á vatnskössum sem innihalda asbest, ljósasamstæðum fyrir jólatré, mjaltavélum, kjarnakljúfum, tækjum til gos- og ruslfæðisiðnaðar og byggingarvörum fyrir verktaka landsins.
Gleymum ekki lampaskermunum, götuljóskerunum og duflaljóskerunum.
Sem „mótvægisaðgerð“ er lækkun vörugjalds sennilega hlægilegasta hugmynd sem fram hefur komið. Hvar er lækkun á fatnaði, skóm, því sem við klæðumst alla daga? Útivistardóti, leikföngum?
Hvar er afslátturinn af þeirri smávöru sem almenningur getur leyft sér að eyða í, í búðum eins og t.d Ikea, Söstrene Grene og Tiger?
Fuck you people! Kaupið bara nuddbaðker, vúlkanfíber og sykurmaís.
Fyrir áhugasama er reyndar vert að benda á að tollnúmer kvikasilfurs- og natríumgufulampa er 85393200 og kjarnakljúfar bera tollnúmerið 8401. Vonandi verða þessar vörur á verulegum afslætti eftir áramót – heimilunum til hagsbóta.
Sjá nánar hér. vörur sem bera almenn vörugjöld