Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Norðmenn gefa vopn en ekkert jólatré?

$
0
0

Samkvæmt aðstoðarmanni forsætisráðherra hvílir engin leynd yfir því að lögreglan mun nú vígbúast sem aldrei fyrr. Að hans sögn eru byssurnar sem DV greindi frá í morgun, gjöf frá Norðmönnum.

Screen Shot 2014-10-21 at 03.30.13 e.h.

 

Þetta er sannkallaður viðsnúningur hjá Norðmönnum því hingað til hafa opinberar gjafir þeirra einkum falist í árlegri jólatrésgjöf, Óslóartrénu svokallaða, sem glatt hefur unga og aldna á Austurvelli.

Eins og fram hefur komið í fréttum hugðust Norðmenn ekki gefa Íslendingum fleiri jólatré. Reyndar birtist frétt á Mbl.is þar sem segir að Norðmenn muni gefa tré. Við skulum spyrja að leikslokum.

Gjöf Norðmanna hlýtur að teljast töluverð viðbót við þær skitnu 500 milljónir sem var aukið í framlag til eflingar almennrar löggæslu í fjárlögum á árunum 2013 -2014. Um tilurð gjafarinnar hefur engin vitneskja fengist enn. 

Úr fjárlagafrumvarpi 2014. sjá mynd

Screen Shot 2014-10-21 at 03.14.17 e.h.

 

Ljósmynd af Flickr eftir Helga Hall

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283