Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Að vígbúast í alvöru – eða láta það bara vera?

$
0
0

Ríkislögreglustjóri segist opinberlega vilja hjálpa lögreglunni „til að vígbúast“.

Ef nú er komið að því augnabliki í sögu þjóðarinnar að okkar bestu lögreglumönnum beri saman um að útilokað sé að halda uppi lögum og reglu í landinu nema með vopnavaldi þá er vitaskuld næsta spurning þessi:

Ef við eigum í höggi við illvíga vopnaða lögbrjóta þarf lögreglan þá ekki að vera betur vopnum búin en lögbrjótarnir – og hvaða vopn eru það sem við getum útbúið lögregluna með til að tryggja henni vopnaða yfirburði yfir hina ofbeldisfullu lögbrjóta?

Screen Shot 2014-10-23 at 11.08.28 f.h.

Það væri munur fyrir lögguna að fá svona Redback þungavopn frá framleiðandanum MetalStorm í staðinn fyrir þetta drasl sem kemur þegar norski herinn tekur til í bílskúrnum hjá sér.

Brynvarin ökutæki, skriðdrekar, léttar færanlegar fallbyssur, róbótar, drónar, handsprengjur, sprengjuvörpur og fleira smátt og gott í höndum hinnar vígreifu íslensku lögreglu gæti aukið möguleika hennar á að hafa sigur við hinn illvíga glæpaher, gráan fyrir járnum, sem hún berst við upp á líf og dauða á hverjum degi – ef marka má hinar dramatísku lýsingar á starfi og starfsumhverfi lögreglumanna.

Áður en hið margboðaða stríð milli lögreglu og hins vopnaða glæpalýðs skellur á er samt kannski rétt að stemma af bókhaldið og spyrja:

Hversu margir hafa nú þegar fallið fyrir skotvopnum í höndum lögreglunnar.

Og hversu margir hafa fallið í skotbardögum við glæpalýð?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283