Jólabasar Kvennadeildar Rauða krossins verður haldinn í dag laugardaginn 25. október frá klukkan 13:00 til 16:00 í húsi Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9.
Á boðstólum verða fallegir handunnir munir er tengjast jólunum og heimabakaðar gómsætar kökur.
Ágóði af sölunni rennur til Fjölskyldumiðstöðvar sem rekin er af Rauða krossinum í Reykjavík með aðkomu Reykjavíkurborgar og velferðarráðuneytisins. Kvennablaðið hvetur alla til að koma við og styrkja gott málefni.
Ljósmynd af Flickr.