Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mjólk er kannski ekki góð

$
0
0

Ný rannsókn sem gerð var við Háskólann í Uppsölum bendir til þess að mjólk sé eftir allt ekki góð fyrir fólk á miðjum aldri. Úrtak rannsóknarinnar náði til meira en 100.000 þúsund einstaklinga þar af 60.000 kvenna sem fylgst var með í 20 ár og 45.000 karla sem fylgst var með í ellefu ár.  Konurnar voru á aldrinum  39-74 ára og karlarnir 45-79 ára þegar rannsóknin hófst.

Úr fréttum sænska sjónvarpsins í gærkvöld:

Niðurstöður rannsóknarinnar voru mest sláandi hvað konur varðar en þær voru tvöfalt líklegri til að deyja af völdum hjartasjúkdóma sem  tengdir voru mjólkurdrykkju.

Rannsóknin leiddi í ljós þvert á það sem haldið hefur verið fram að þeir sem drekki mjólk brjóti síður bein því hjá konum var mjólkurneysla einmitt vera tengd aukinni tíðni mjaðmagrindarbrota.

Höfundar skýrslunnar og lýðheilsustofnun Svíþjóðar hyggjast ekki breyta næringarráðleggingum sínum vegna rannsóknarinnar því fyrir henni liggi ekki nægilegar sannanir til að breytinga sé þörf.

Rannsóknin stangast verulega á við aðrar rannsóknir á mjólkurneyslu fólks.

Hér er hlekkur á skýrsluna sjálfa.

Ljósmynd af Flickr.

 

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283