Benedikt Erlingsson vann kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í gær fyrir mynd sína Hross í oss. Hann nýtti tækifærið og sendi íslenskum ráðamönnum tóninn í ræðu sinni og sagði frá gríðarlegum niðurskurði íslenskra stjórnvalda til kvikmyndagerðar.
Hann bað jafnframt gesti hátíðarinnar að gefa sig á tal við íslensku ráðamennina í eftirpartýi hátíðarinnar og reyna að koma fyrir þá vitinu.