Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nú skal sungið á Austurvelli!

$
0
0

Svavar Knútur skrifar á Facebook viðburðasíðu boðaðra mótmæla á Austurvelli í dag:

„…

Er eitthvað sem er meira hvetjandi í baráttunni en að láta Brynjar Níelsson og Karl Garðarsson tala niður til sín? Tjah, kannski að syngja!“

Svavar Knútur er þarna að vísa í stöðuppfærslu Karls Garðarssonar á Facebook í dag:

Screen Shot 2014-11-03 at 11.37.28 f.h.

og Brynjar Níelsson sem var á Bylgjunni í morgun.

 

Svavar Knútur hvetur fólk til að prenta út eftirfarandi söngtexta og þenja raddböndin síðdegis í dag á Austurvelli.

TÆTUM OG TRYLLUM

TÆTUM OG TRYLLUM

Tætum og tryllum og tækið við þenjum
í botni eithvað lengst upp í sveit.
Tröllum og tjúttum og tökum svo lagið
við lundi hvar enginn veit
Allir eru í fínu formi
enginn nennir neinu dormi.
Því nóttin er löng
þótt að lífið sé stutt
og allir fara í sveitarferð.
Allt er í fína og enginn vill sína
á sér sút eða sorg í kvöld.
Konráð og Ræna hani og hæna
fatta að hér er gleðin við völd.
Allir eru í fínu formi
enginn nennir neinu dormi.
Því nóttin er löng
þótt að lífið sé stutt
og allir fara í sveitarferð.

LAND MÍNS FÖÐUR

LAND MÍNS FÖÐUR
Land míns föður, landið mitt
laugað bláum straumi
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
þetta auglit elskum vér,
- Ævi vora á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.

Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu ísa og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norður ljósum.

HVER Á SÉR FEGRA FÖÐURLAND?

HVER Á SÉR FEGRA FÖÐURLAND?

Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, ljós og ljóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
er duna jarðarstríð.

Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hátign jökla, bláan sæ,
hún uni grandvör, farsæl, fróð
og frjáls – við ysta haf.

LÖG OG REGLA
Hvers vegna eru lög og regla
til að fela hitt og þetta?
Blóðug spor og handjárn smella
skýrslur segja „Hann var alltaf að detta“.
Börðu hann í bílnum með kylfum og hnúum
hædd’ann og svívirtu með tungum hrjúfum.
Ekkert sást nema lítið mar
þetta var slys við vorum ekki þar.
Við heyrðum hann kalla, biðja um vatn
kvartaði líka um honum væri kalt.
Seinna um nóttina talaði út í bláinn.
það var ekki fyrr í morgun að við sáum að hann væri dáinn.
Ekki benda á mig, segir varðstjórinn.
Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn.
Spyrjið þá sem voru á vakt.
Ég ábyrgist þeir munu segja satt.

RYKSUGAN Á FULLU

RYKSUGAN Á FULLU
Ryksugan á fullu étur alla drullu,
lalalala, lalalala, lalalala.
Skúra skúbb´ og bóna ríf´ af öllum skóna,
lalalala, lalalala, lalalala.

Og ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa.
Og ef þú getur ekki klappað reyndu þá að stappa.
Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi.
og syngi ekki sitt af hvoru tagi.

Skúra burtu skítinn svo einhver vilji líta inn.
lalalala, lalalala, lalalala.
Pússa burtu rykið með kúst á gömlu priki.
lalalala, lalalala, lalalala.

Og ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa.
Og ef þú getur ekki klappað reyndu þá að stappa.
Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi.
og syngi ekki sitt af hvoru tagi.

Skúra burtu skítinn svo einhver vilji líta inn.
lalalala, lalalala, lalalala.
Og pússa, pússa, pússa, pússa, pússa, pússa, púla
lalalala, lalalala, lalalala.

Og ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa.
Og ef þú getur ekki klappað reyndu þá að stappa.
Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi.
Og syngi ekki sitt af hvoru tagi.

Svo söngflokkurinn haldi sínu lagi.
og syngi ekki sitt af hvoru tagi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283