Um 5000 manns komu saman á Austurvelli í dag. það var stemmning í lofti og mátti sjá fólk á öllum aldri saman komið í þessum friðsamlegu mótmælum.
Fólk tjáði skoðanir sínar á mótmælaspjöldum og mátti sjá skilti með ýmsum áletrunum:
„Simmi, lýgur þú svona heima hjá þér?“
„Hríðskota-Hanna hvað næst?“
„Upp með hendur – Niður með byssur“
„Burt með byssur og persónunjósnir“
„Jörðum ekki tónlistarkennsluna“
„Skerðið ekki menntunarmöguleika ungra sem aldinna“
„Bannað að hækka matarskattinn“
„Lýðræðið er pólitískur möguleiki“
„Hagsmunir hverra ráða för?“
„Svik.is“
„Fokk jú“
Ljósmyndarinn Einar Ólason var á staðnum og fangaði stemmninguna. Kvennablaðið þakkar honum fyrir að deila myndunum með lesendum okkar.