Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Einlínur – Erla Þórarinsdóttir

$
0
0

Myndlistarkonan Erla Þórarinsdóttir opnar sýninguna “Einlínur” í SÍM salnum Hafnarstræti 16 Fimmtudaginn þ. 6. nóvember kl. 17:00. Í Fréttatilkynningu um sýninguna segir:

erla2

Einlínur eru málaðar á álplötur í ham einbeitingar þar sem liturinn rennur og línan heldur áfram óbrotin útí eitt. Unnið er með orku litarins, endurkast álplötunarinnar og flæði línunar sem myndar form. Hugleiðsla, stilling og nám í austrænni heimspeki eru áhrifavaldar svo og viðveran í samtímanum. Verkin eru útfærð í Reykjavík 2013-14

erla1

Erla nam myndlist og hönnun við Konstfackskolan í Stokkhólmi og Gerrit Rietveld Akademíuna í Amsterdam. Hún hefur starfað og sýnt á Norðurlöndunum og í Mið-Evrópu, í New York, Kína og hérlendis. Verk hennar eru víða í einkaeign, í opinberri eigu safna og í almennu rými svo sem “Vetrarsólhvörf – endurspeglun” í Ráðhúsi Reykjavíkur sem er tíma- og staðbundið verk,“Norðurljósasæti” við Rauðavatn og steinverk í baðlaug Fontana við Laugarvatn. Hefur hún hlotið styrki og viðurkenningar, meðal annars frá hinum virta Pollock-Krasner sjóði tvisvar.

erla3

Málverk Erlu hafa einkennst af óhlutbundnum formum og strúktúrum, minni mannsins og nálgun við frumið og það sem sameinar okkur burtséð uppruna. Hérlendis hefur hún notast við blaðsilfur í málverk og látið þau oxast í andrúmslofti okkar.“

Sýningin er opin alla virka daga kl.10-16. Laugardaginn 8. nóvember kl.14-17


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283