Föstudaginn 7. nóvember var heimildamyndin Salóme frumsýnd í Bíó Paradís og verður hún í sýningum til 20. nóvember.
Heimildarmyndin Salóme fjallar um Salóme Fannberg, veflistakonu og sex barna móður. Það er dóttir Salóme, Yrsa Roca Fannberg, sem gerir myndina en hún fjallar á djúpstæðan hátt um hvort tveggja í senn, mæðgnasambönd og samband leikstjóra við viðfangsefnið. Það má með sanni segja að hér sé á ferðinni beinskeytt og fyndin en umfram allt hjartnæm mynd.
Salóme hefur þegar unnið til þriggja verðlauna: „Best Nordic Documentary“ á Nordisk Panorama hátíðinni, „Most Moving Movie“ á Szczecin-hátíðinni í Póllandi að ógleymdum „Einarnum“ á Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda.
Yrsa Roca Fannberg, leikstjóri myndarinnar, fylgir nú velgengni myndarinnar eftir og ferðast á fjölda hátíða nær og fjær. Næst á dagskrá eru L´Alternativa í Barselóna, Pravdo Ljudski Film Festival í Sarajevo og Cinema Verité í Teheran í Íran.
Framleiðslufyrirtækið Skarkali stendur að myndinni og er Helga Rakel Rafnsdóttir aðalframleiðandi. Salóme er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands, Film i Skane og Menningarsjóði Hlaðvarpans.