Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ísland er á miðaldastiginu í geðheilbrigðismálum

$
0
0

Á Íslandi er tímaskekkja, ekki bara í geðheilbrigðismálum heldur í fangelsismálum. Í kastljósi á þriðjudaginn,  þar sem var umfjöllun um skotbardagann og harmleikinn í Hraunbæ, kom fram að Íslendingar, sem nú hafa gortað af því í áratugi að vera velferðarríki, eru á miðaldastiginu þegar kemur að velferð í geðheilbrigðismálum. Réttargeðdeild á Sogni var lokað og nú er geðveiku fólki, sem brýtur af sér, bara hent í fangelsi. Þegar það síðan brýtur af sér í fangelsinu er því hent í einangrunarklefa.

Það sem verra er og mér varð morgunljóst eftir að hafa horft á þessa umfjöllun er að í hjarta réttarríkisins, þ.e. í dómsalnum, er mjög veikt fólk úrskurðað sakhæft einungis til að þóknast fornöldinni. Af hverju drýgir það slíkan mannréttindasóðaskap? Það stendur ekki uppi í hárinu á fornaldarstigi samfélagsins sem það lemur hamrinum fyrir, nei, það lyppast eins og silfurskotta með óhugnaði þeim sem ríki okkar býr geðsjúku fólki.

Í stað þess að berja hamrinum í borðið og segja að þeir menn sem ekki eru sakhæfir, séu ekki sakhæfir og því sé ekki hægt að dæma þá í fangelsi og þvinga þannig yfirvöld úr miðaldavímunni og yfir til okkar á 21. öldina þá afgreiða þeir eftir hentisemi ríkis, sem er á sama stað og þegar krypplingar voru geymdir í fjárhúsum og flogaveikir í búrum. Þetta eiga að vera lærðir menn og konur, þetta fólk ætti vel að geta sagt nei, þetta getum við ekki gert. Svona lágt getum við ekki lagst, við getum ekki dæmt fólk sakhæft þegar það er það ekki, við erum hér á 21. öldinni og höfum verið í háskóla og vitum að þetta má ekki og er siðlaust. Það heyrist ekki múkk í þessu fólki, það bara dæmir veikt fólk á Litla-Hraun. Ég veit ekki hvar læknar standa í þessum málum en þarna er eitthvað mikið að.

Ég get varla lýst ógeðinu og óbragðinu sem dreif alla leið upp í sálartetrið þegar sagt var frá því að mjög veikum manni hafði verið fleygt í einangrun og látinn dúsa þar í mánuð! Oj! Eftir mánuð kvarta fangaverðir við yfirvöld og segja þetta ekki hægt. Eftir mánuð … þá kvarta þeir, sem bendir til þess að þeir séu samdauna ömurlegu ástandi og alls ekki í stakk búnir til þess að hugsa skýrt. Ég vil gjarnan vita af því ef einhver var búinn að láta vita fyrr, reyna að segja eitthvað. Ég hefði ekki getað afborið svona viðbjóð nokkurn tíma, ég hefði talað við mína yfirmenn og skipað þeim að gera eitthvað í málinu strax. Kannski reyndi það einhver, það væri gott að vita hafi einhver gert það, það myndi gefa von um að þarna sé fólk ekki algerlega samdauna stórskemmdum aðstæðum. Að vita að einhver, þótt það væri ein sála sem hefði sagt eitthvað við þessu áður en manneskjan var búin að vera heilan mánuð í einangrun.

Þetta bendir líka til þess að þörfin fyrir samfélagið að fá að vita hvað er að gerast í þessum fangelsum verður brýnni. Þetta er að sjálfsögðu ekki fangelsismálayfirvöldum að kenna, það er ekki Páli Winkel eða Margréti Frímannsdóttur að kenna að hér ríki miðaldaástand í geðheilbrigðismálum. En það er svo sannarlega á þeirra ábyrgð að láta það viðgangast að fársjúkum manni sé haldið í einangrun í þeirra klefum í heilan mánuð án þess að segja múkk. Það bendir til að þetta fólk sé alls ekki starfi sínu vaxið, ekki með sjálfu sér eða eitthvað mikið að siðferðiskennd þess. Þó má það vera að þetta starfsfólk sé samdauna ástandi sem á ekki að eiga sér stað í siðuðu landi. En þá verður það líka að víkja fyrir öðrum sem ekki eru samdauna og lifa á okkar tímum.

Mér finnst alveg fullkomlega galið að láta þetta sem vind um eyrun þjóta, því þótt augu landans hafi verið á ömurlegum harmleik manns sem féll af skotsárum eftir byssubardaga við lögregluna þá stakk þetta svo í gegn að ég skil ekki lengur hvers konar land þetta er. Getur einhver bent mér á annað Evrópuríki þar sem geðveiku og ósakhæfu fólki er hent í almenn fangelsi og látið síðan dúsa í einangrunarklefa þegar það getur ekki farið eftir reglunum í fangelsinu? Við getum ekki látið þetta viðgangast og einhver hlýtur að þurfa að svara fyrir þetta.

Mynd sem fylgir grein er fengin af Wikipedia commons og er eftir Fransisco Goya og heitir Casa de logos eða Hús hinna vitfirrtu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283